torsdag, august 15

Glöggir (eða ætti ég frekar að nota orðið fáir?) lesendur hafa væntanlega tekið eftir því að talsvert langt er liðið síðan seinast. Bloggið er hætt að veita mér þá fyllingu sem það veitti mér ekki áður. Auk þess fer yfirlýstum (en ósönnum) tilgangi þess að ljúka; þ.e. Svala kemur heim á mánudag og þess vegna sé ég mig ekki knúinn til þess að rita fréttir hér. Þess vegna er þetta ritað með fyrirvara um að þetta verði seinasta póstið á þessa annars ágætu síðu. Ég hugsa þó að ég muni koma til með að vaðrveita textann og jafnvel binda inn og er þá komin ómetanleg heimild um mitt eigið sumar árið 2002, þá auðvitað sé ýmsu sleppt; ýmsu sem ég mun einungis varðveita í minningunni.
//
En auðvitað hefur ýmislegt gerst síðan seinast, sem var 5. ágúst. Hæst ber kannski slys sem systir mín varð fyrir. Ég veit ekki hvort ég á að hafa málsatvik eftir hér þar sem ég býst við að flestir ef ekki allir lesendur séu þeim kunnugir. Ef ekki má lesa nokkuð greinargóða lýsingu hér og sjá mynd. Þar er hinsvegar ekki farið í mínu persónulegu hlið enda ekki ástæða til opinberlega, ekki opinberar en hérna allavega. Ég fékk geysimikið samviskubit þegar ég loksins fékk að heyra hvað væri að, eða um kl. 21:15 á laugardagskvöld. Þá hafði ég samband við foreldra mína sem höfðu verið niðri á slysavarðstofu frá því um miðjan daginn. Mamma tjáði mér að systir mín væri öll marin á hálsi og öxlum, með lausa tönn og tvo brákaða hálsliði. "Ef Brynhildur hefði staðið aðeins öðruvísi eða skyggnið hefði hrunið af örlítið meiri þunga, væri hún hugsanlega lömuð niður úr hálsi.", var meðal þess sem ég fékk að heyra. "Það kemur í ljós á morgun hvort hún þarf að fara í uppskurð.", var númer tvö. Mér krossbrá og mun ég nú láta í ljós ástæðu samviskubitsins. Það var jú þannig að rétt um kl. 17 á laugardaginn sat ég í garðinum við Sirkus, með bjór í hönd og beið eftir því að rokktónleikar hæfust. Þá hringir síminn minn og það er Brynhildur, hágrátandi, segist vera mjög illt í bakinu vegna þess að það hafi hrunið eitthvað þak við Hlöllabáta; "hvað á ég eiginlega að gera?", spyr hún mig. Ég, nokkuð pirraður á vælinu í systur minni segi bara í pirruðum tón: "Ef þér er svona illt skaltu bara hringja heim og fá þau til að sækja þig." Það gekk hinsvegar ekkert rosalega vel einsog fram kemur í frétt morgunblaðsins hér að ofan. Ef ég hefði bara farið til hennar... Ég veit það hefði engu breytt um hálsinn, en hún hefði ekki ráfað alein um í fleiri mínútur, og kannski ég hefði getað dregið úr lostinu. En hún tórir, þarf að vera í kraga næstu sex vikur. Þar af eru fjórar við upphaf áttunda bekkjar. Maður þarf virkilega á því að halda að vera svalur þegar maður byrjar í áttunda. Svo eru svona litlir krakkar svo miklir fávitar stundum, og fæstir þeirra vaxa upp úr því, að þeir dæma fólk í sumum tilfellum út frá einhverjum svona gjörsamlega fáránlegum hlutum, einsog hvort fólk sé í hálskraga eður ei. Systir mín býr yfir mjög miklum metnaði til þess að komast í nemendaráð strax í áttunda bekk, svona svipuðum og ég hafði þegar ég var í áttunda bekk. Hún vill líkjast stóra bróður alveg einsog ég vildi líkjast stóra bróður. Hugsanlega getur kraginn dregið verulega úr atkvæðafjölda hennar, sérstaklega frá þeim sem koma úr Breiðagerðisskóla, þannig er nú bara veröldin. En við vonum bara það besta. Ég hefði allavega ekki fílað upphafið í Réttó með kraga, þeir sem þekkja til mín og míns ferils þar geta staðfest að það hefði næstum því verið hjákátlegt.
//
Á föstudagskvöld, þ.e. kvöldið fyrir slysið vorum við félagarnir (það tekur líka til vina minna af kvenkyni) í tómu rugli. Eftir langa umhugsun um hvað við ættum að taka okkur fyrir hendur afréðum við að fara að sjá Minority Report. Það var náttla uppselt, bæði kl. 23 og á miðnætti. Þá tók við áhorf á kvikmyndina Evil Dead heima hjá Burum. Nokkuð léleg mynd, en samt furðu spennandi miðað við allt saman. Költari, og maður verður að hafa séð hana hvortsemer. Sunnudagurinn fór í það að ljúka Rósavín & Raftónlist en hún kom einmitt út á mánudag. Þið getið lesið um hana og álit fólks á henni hér. Ég er nokkuð ánægður með hana, er meiraðsegja ekki frá því að hún sé bara betri en Undralandið. Kannski ekki alveg jafn eftirminnileg, en örugglega endingarbetri og meira gefandi. Eða hvað? Ég á mjög erfitt með að gera upp á milli þeirra, set þær á jafnháan stall. Mánudagur og þriðjudagur voru vinnudagar. Mánudagskvöld fór í áhorf á Hringdróttinssögu sem er alveg stórkostleg kvikmynd. Ég hafði ætlað að geyma mér það að horfa á hana þar til að Svala væri komin heim. Planið var að búa til dáldið nostalgíska stemmningu í kringum áhorfið, því það er jú óumflýjanleg staðreynd að ég og Svala byrjuðum saman á þessari mynd 28. desember sl. Þ.a.l. munum við geta haldið upp á eins árs og tveggja ára afmæli okkar (ef til þeirra kemur, ég á allavega mjög sterklega von á því fyrra) með því að sjá Turnana tvo og Hilmir snýr aftur (ég held allavega að þetta séu rétt nöfn...). En neineineinei, Svala var ekkert í sömu pælingum og ég, og ég frétti það frá bbrokk aka bibiogblaka að hún væri búin að horfa á hana tvisvar úti í Köben. Að vísu var það nokkur sárabót að hún á víst að hafa látið frá sér komment í sirkabát hverri einustu senu sem voru eitthvað á þessa leið: "Já, og þarna, þá var ég ógeðslega hrædd og greip ógeðslega fast í höndina á Atla og hann kreisti á móti og bara vá...". En hún horfði samt á hana án mín, svo ég hefndi mín og horfði á hana með mínum vinkonum (og Orra að vísu). Hah!
//
Þriðjudagskvöld kláruðum við að fjölfalda Rósavínið, vorum bara búnir að fara með hluta af upplaginu. Kristín sat með okkur í því, og myndaðist dáldið fyndin þögul stemmning þar sem ég lá í sófa í stofunni hjá Leó; Leó var undir teppi og með Kristínu til fóta og við mældum varla orð af vörum. Svo komu fjölskyldumeðlimir Leós einn af öðrum og fengu sér sæti í stofunni og komu með ýmis mis-spaugileg komment. Oft jöðruðu kommentin við að vera vandræðaleg, svo kreist virtust þau stundum vera. En ég lifði þetta alveg og Leó, en ég er ekki viss um hvort Kristín hafi höndlað þetta. Kristín var ein síns liðs þar sem Guðríður systir hennar var í einhverri hátíðlegri heimsókn hjá tengdó. Þ.e.a.s. foreldrum Jóns Péturs, en hann er víst glænýr kærasti Guðríðar. Hef ekki ennþá myndað mér skoðun á honum, en ég byrja oftast á því að dæma fólk fífl og svo fær það að vinna sig þaðan upp. Hann vann sig strax heilmikið upp við það að skipta um föt og setja upp gleraugu. Vona að þetta fari allt vel. Því skylt en engu að síður óskylt er að Mulnings nokkur fer (eða fór) af landi brott í dag. Hann er farinn til Köben að læra arkitektúr skilst mér. Frábær gaur hann Mulli, ég sé virkilega eftir honum. Tengingin er að ég sá hann alltaf fyrir mér sem kærasta Kristínar, en nú eru víst allar brýr brunnar í því sambandi. Þá er það bara Auxpan.
//
Hvernig er þetta sumar búið að vera? Ég spyr sjálfan mig, því það er alveg að klárast og mér finnst það nýhafið. Það hefur án efa verið litað söknuði og mikilli vinnu. 12 tíma vaktir eru langar, og ég tala ekki um á laugardögum og sunnudögum. Næsta sumar verð ég að vera í vinnu sem fer einungis fram á virkum dögum. Djammið hefur verið dáldið, en samt minna en seinasta sumar, eða mér finnst það allavega. Auðvitað var ferðin til Kaupmannahafnar alveg frábær, og það hafa farið fram nokkur mjög sóðaleg fyllerí, eitt þó sérstaklega; en ég veit ekki hvort þetta verður, svo ég sletti: a summer to remember. Kannski verða sumur það aldrei fyrr en einmitt í minningunni. Er strax farinn að hlakka til næsta sumars, þ.e. ef fjölskylda mín lætur verða af þeim hugmyndum að leigja hús í Toscana og dvelja þar einhvern tíma. Mér hitnar við tilhugsunina.
//
Á morgun fer ég í klippingu. Það verður spennandi að sjá. Í morgun mætti ég í vinnuna frá 05 til 06. Það var ágætt, sérstaklega í ljósi þess að ég fæ borgað til 09. Ég er reyndar núna í vinnunni, sem næturvörður. Fer heim kl. 08 í fyrramálið. Svo mæti ég á föstudagsmorgun kl. 08. Seinasta vaktin mín er á sunnudaginn. Á miðvikudaginn næsta held ég svo út í heim, eiginlega um leið og ég og Svala höfum átt einhverskonar endurfundi. Ég flýg til Lundúna, gisti hjá frænda mínum Vito Rocco (sem hefur m.a. leikstýrt mynböndum fyrir Jimi Tenor og Laurent Garnier) eina nótt og held svo til Leeds á tónlistarhátíð. Kem aftur að kvöldi fyrsta skóladagsins. Þá hefst hið raunverulega líf á ný, eða kannski hið óraunverulega? Er sumarið kannski nær rauninni en veturinn? Gæti mjög hugsanlega verið. Ég ætla að reyna að djamma mikið í vetur, mér finnst nefnilega svo gaman að djamma. Taka alveg tæplega hverja helgi. Djöfull verður það magnað.
//
Jæja nú fer ég að taka rúnt um hótelið, sjá hvort það sé ekki allt læst og svona, fullvissa mig um að það séu engar brotnar rúður. Kannski kemur meira seinna í nótt.

mandag, august 5

Nýtt met í ormnum; 2289 stig. Skora hér með á alla lesendur í keppni.

søndag, august 4

Dagurinn hefur verið rólegur, sunnudagur á Hótel Sögu skilar manni sjaldnast mikilli lífsreynslu. Eða hvað? Ég hef fundið ýmislegt spennandi á Netinu sem ég fyndi kannski ekki annars. Til dæmis hafði ég aftur uppi á orminum sem ég var búinn að týna, núverandi staða er 2139 stig. Einnig fann ég Baggalúti. Mæli sérstaklega með Gubblimru og Ein lítil árétting. Allt er samt gott. Á Tilverunni er hægt að finna fullt af góðum Flash leikjum og má þar nefna Moonlander, sem bróðir minn er að tapa sér yfir. Fyndið, núna skrapp ég frá; og seinustu orðin sem ég sagði áður en ég snéri aftur voru: "Bróðir minn er að tapa sér yfir risottoi."; sömu orð og ég ritaði seinast. Allavega, þar er einnig að finna þennan leik, sem er umdeilanlegur. Einnig er þarna að finna hjálparforrit til að vita hvernig kynlífið á að vera í kvöld. Annars getið þið bara krúsað þetta sjálf hérna.
//
Veðrið er svo slæmt, að ég man varla eftir öðru eins. Það hefur rignt stanslaust í tvo daga. Glaður að ég hélt mig í bænum og þénaði meðan stelpurnar og karlkonurnar eltu hnakkana til Eyja. Karlakarlarnir (Orri & Leó) voru náttla með mér í bænum og við höfum haft það náðugt. Ég og Leó erum gjörsamlega að falla á tíma með Rósavínið, gæti jafnvel seinkað um nokkra daga.

torsdag, august 1

Já og þetta er linkur á siðuna steikurinnar: www.mp3.com/earthvomit/

Sjitt. Djöfull er þetta búið að vera steikt. Dagurinn fór hægt af stað. Ég vaknaði seint og dreif mig út í sólina. Mamma, Pabbi og Brynhildur rúntuðu svo til Akureyrar um kl. 14, og þá dreif ég mig úr nærbuxunum og kastaði mér allsnakinn á sólbekkinn. Sólaði mig þar í allan dag. Tel ég hafi jafnvel tekið lit. Stökk svo í sturtu, átti gott spjall við Svölu á MSN og dreif mig svo til Leós. Við gengum í stað í átt að heimili Kára, því þar ætluðum við að fá lánaðan mic til að taka upp trommur. Þegar við erum komnir að svæðinu sem er fyrir ofan Grímsbæ, fyrir ofan leikskólann; þarna á milli Bústaðavegar og Hæðargarðs þar sem skátarnir hafa m.a. athvarf; þá heyrum við bassa. Við göngum á hljóðið og heyrum einnig votta fyrir trommum. Við finnum skúrinn sem hljóðið kemur úr og bönkum upp á. Nokkrum sinnum. Enginn kemur, svo við ákveðum að banka aftur og fastar á leiðinni tilbaka. Heimili Kára var tómt svo við vorum komnir aftur fljótlega og fengum þá svar við voru banki. Okkur var boðið inn og var þetta þá hið ágætasta æfingarhúsnæði þar sem rokkhljómsveit var að störfum. Við spjölluðum við gaurana sem þarna voru um tónlist og lífið sjálft og okkur Leó leist nokkuð vel á bassaleikarann Freystein. Eftir örugglega klukkustundar stopp sögðu þeir okkur frá einhverjum raftónlistargæja sem væri í næsta skúr. Hann væri víst að gera allskyns furðulegt bítlaust dót. Um leið heyrist píanóglamur úr næsta skúr. Ég og Leó kveðjum og bönkum á næstu dyr. Til dyra kemur rauðhærður, snoðaður gaur með eyrnalokk í öðru eyra. Hann var einnig afar ósmekklega klæddur. Hann bauð okkur inn og sýndi okkur eldgamalt og mjög kúl píanó sem hann hafði komist yfir. Hann talaði mjög mikið og var greinilega mjög ánægður með heimsóknina. Einnig kom í ljós að gaurinn býr þarna, í bílskúrnum, sem amma hans á. Þessi maður var ekki heill. Ég taldi að hann væri veill á geði, og gerði meiraðsegja tilraunir til að sjá hvort lyf sem ég sá á borðinu væru þekkt geðlyf. Ég sá það ekki. Leó hinsvegar kom auga á hassleifar og talsvert af afskornum plastflöskum í íbúðinni. Íbúðin samanstóð af stúdíói, stofu, eldhúskróki og svefnherbergi þar sem hann virtist sofa á dýnu. Hún var mjög skítug og dálítið ógeðfelld. Maðurinn spilaði fyrir okkur sína tónlist (sem var reyndar ágæt) og spurði okkur útí okkar hagi. Þetta var allt saman mjög spúkí, væri ekki til í að hitta hann einn míns liðs.
Svona var allavega kvöldið. Er að fara að vinna á morgun og hinn og hinn og hinn. Mikið djamm á mér um verzlunarmannahelgina, maður...