onsdag, juli 31

Það er eitthvað rotið í þjóðarsál Íslendinga. Þeir halda ennþá að þeir séu þeir sömu og flúðu lög & rétt frá Noregi fyrir þúsund árum. En sú er ekki raunin. Við erum nútímaþjóðfélag. Við höfum rifið okkur uppúr skít og volæði á fimmtíu árum. Fram á áttunda áratuginn bjó fólk enn í torfkofum, en nú er svo komið að Reykjavík er dásömuð fyrir næturlíf sitt, menningarstarfsemi og stórborgarbrag. Til mín kom kona útá Sögu um daginn og spurði mig hvernig í ósköpunum við, þessi fámenna þjóð, gætum haldið ríkinu gangandi, og verið með svona magnað infra-structure. Reyndar var þessi kona afspyrnuheimsk, og vissi eiginlega ekki neitt um neitt, en engu að síður fannst henni þetta ótrúlegt; og kannski er þetta ótrúlegt, en þrátt fyrir alla þessa tækni og hagsæld og nútímabrag, þá virðist sem þjóðin sjálf hafi orðið eftir. Víkingar í hafsjó stórborgarinnar. Hvernig væri það? Fólk gengi um rænandi og ruplandi, ofdrukkið, í hólmgöngum við fólk sem væri öðruvísi, það teldi sig herraþjóð sem réði yfir öðrum þjóðum, allavega svo lengi sem útlendingarnir væru á okkar auma skeri. Þegar fólk myndi safnast saman myndi hver karlmaður finna sér konu til þess að ríða, og þá skipti engu hvort hennar vilji væri til staðar eða ekki. Við myndum ekkert skeyta um okkar umhverfi, leyfa kindunum að éta það sem hægt er að éta og losa okkur við úrganginn í bæjarlækinn. En hvernig er ástandið í dag? Er það nokkuð svo frábrugðið lýsingunni hérna að framan? Nauðganir eru örugglega hvergi fleiri í heiminum en á Íslandi (að undandskildum stríðsþjáðum löndum), rasismi sækir sífellt í sig veðrið, kindurnar eru kannski horfnar, en við förum allt á bílum og erum þannig fullkomlega skeytingarlaus um umhverfi okkar, og munum hægt og hægt koma til með að eyðileggja þetta hreinasta land í heimi, sem okkur var gefið; alveg einsog víkingarnir eyðilögðu skóginn sem þakti landið fyrir þúsund árum. Allir ungir Íslendingar halda að þeir verði ekki fullorðnir, algildir þjóðfélagsmeðlimir nema þeir eigi bíl, helst jeppa. Átta sig ekki á því að með því að sleppa því að eiga bíl þá spara þau sér sem nemur daglegum reykingum í ár, á hverju ári. Af hverju er ekki kennt í skólum að bílar séu ekki nauðsynlegir? Er það vegna þess að kennarar halda að þeir séu það? Sennilega. Því þeir eru líka rotnir nauðgarar, ofbeldisseggir, ofdrykkjufólk, laumu-kapítalistar og umhverfismorðingjar. ("Hvað er þetta? Ha? Ha? Getið þið þetta ekki? Ókei, ókei, þetta var kannski dáldið erfitt. Þetta var vistkerfi að deyja.") En kannski má líka kenna skipulagi nútímaborgarinnar um. Hún er skipulögð af bandarískri úthverfafyrirmynd, þar sem fólk býr í einbýlishúsi og keyrir einn og hálfan tíma í vinnunna sem er á öðrum stað, vinnur, og keyrir svo aftur jafn lengi til að komast heim í einbýlishúsið sitt. Iðnaður er yst (falinn), íbúðir næst, verslun næst, og skrifstofur innst. Engu má blanda saman. Allar búðir þurfa að vera samankomnar í sérstökum húsum, sem kallast verslunarmiðstöðvar upp á okkar ástkæra ylhýra, sem einnig á undir högg að sækja. Fólki er alveg sama hvort það segir mér langar eða mig langar, eða ég vil eða ég vill, því finnst það bara ekki skipta máli. Furðulegt. Smá útúrdúr, en til allrar hamingju er ekki nákvæmlega sama skipulag við lýði í Evrópu. Þar er fólk alveg reiðubúið að vinna í sama hverfi og það býr í, og telur það kannski bara jákvætt, þá getur það t.d. labbað í vinnunna og þannig stuðlað að hreinna umhverfi og minni fitu. Hallelúja fyrir því að bara þriðji hver maður er of feitur í Evrópu en annar hver í BNA. Já því miður þokast Evrópa sífellt nær risanum í vestri. Ég bendi á ansi skemmtilega grein sem var í DV um helgina, sem fjallaði um það hvort að Íslendingar ættu að elta Bandaríkjamenn í þjóðfélagsgerð eða Evrópumenn. Benti svo á að bilið þarna á milli fer sífellt minnkandi, því miður. Bandarísk þjóðfélagsgerð er nefnilega tæplega spennandi. Byggir á þjóðernishyggju og einstaklingshyggju og auðhyggju. Allt frekar neikvæðum hugtökum, ekki satt? Af hverju hætta Íslendingar ekki bara að reyna að líkjast nokkrum og skapa fyrsta almennilega ríki heims, þar sem borin er virðing fyrir náunganum og reynt að skapa skemmtileg samfélög. Samfélög þar sem fólki líður vel. Samfélög þar sem fólk vill fara niðrí bæ, til þess að sýna sig og sjá aðra. Samfélag þar sem almenningssamgöngur virka. Almennilegt samfélag.
//
Takk fyrir. Smá pælingar í gangi hér fyrir ofan. Ég vaknaði nefnilega í morgun og var bara drullupirraður á heimsku almúgans og skeytingarleysi. Sá að við höfum ekkert þróast og leiddist það.
//
Langt síðan ég hefi bloggað. Þetta verður örugglega svona rúmlega vikulegt í vetur, ef svo mikið. Kannski ég hætti bara. Veit ekki. Þetta er svona misgaman. Vildi ég gæti alltaf bloggað um eitthvað sem skipti mig máli, ekki bara helgardjammið. Það er hinsvegar næst á dagskrá:
//
Föstudagur.
Mæti til Leós fljótlega eftir kvöldmat og fylgist með honum éta tvo borgara. Svo opnum við bjór og sötrum hægt og hægt. Dextrum Sóleyju til að kíkja á okkur og hanga með okkur. Það er nokkuð sjaldgæft, þ.e. hún ein síns liðs án stuðnings Tvíbura. Sama gildir um Völu. Við allavega súptum og hlustuðum og vorum bara mjög róleg. Smám saman bættist við af fólki og að endingu fluttist partíið litla sem var hjá Leó í Árbæinn ömurlega, þar sem Gunni Jakobs hélt úti partíi. Þar þekkti ég engan, nema þá sem ég kom með og Gunna sjálfan. Mér leiddist nokkuð þar og að endingu skutlaði Nonni mér og Leó og fleirum aftur heim til Leós þar sem við tókum því afar rólega. Svo rólega að LP5 Autechres var á fóninum. Þeir sem þekkja til, skilja rólegheitin þá. Fór heim og var ekki nógu sáttur.
Laugardagur:
Startaði kvöldinu á því að fara í mitt fínasta púss og bruna svo niður á leiksýninguna Títus sem var í einhverri skemmu úti á Granda; Fiskislóð réttara sagt. Sýningin var stórskemmtileg með mjög kúl tónlist í boði Borko. Eftir sýninguna var víst partí í Loftkastalanum en ég og Leó fórum heim til hans. Tvíburarnir (sem höfðu verið með okkur) fóru á Gauk á stöng, en þar var afmæli hjá einhverjum plebba. Þegar ég kom heim til Leós greip mig löngun til þess að djamma geðveikt. Bara tryllast alveg og drekka mikið og dansa og lifa lífinu einhvernveginn. Þetta var alveg orðið bara, "mig langar að djamma einsog nóttin sé eilíf, og enginn geti stöðvað mig. Ég er ungur og það er sumar og mig langar að líða einsog ég sé sex ára, áhyggjulaus og bara í stanslausu stuði...". Mig langaði líka heví til að hafa Svölu með mér í þessu, en það er víst ekki hægt, svo ég hringdi í hana og við áttum ansi skemmtilegt spjall. Þegar ég snéri aftur inn til Leós (af svölunum) lá hann á gólfinu og hlustaði hátt á Pixies. Ég hlustaði með og opnaði bjór. Við ákváðum að djamma feitt, vissum bara ekki hvar og hvernig. Þegar Pixies lauk, fóru Chemical Brothers á fóninn, og vodka í glasið. Þegar þeim var að ljúka stakk ég upp á því að við fluttum okkur heim til mín, m.a. til að ég gæti athugað hvort bróðir minn ætti einhver skilríki á lausu. Svo var ekki, en ég og Leó stilltum bara tónlistina hátt inni hjá mér (enginn var heima nema systir mín) og dönsuðum þar og drukkum. Svona um hálftvö kíkti félagi okkar Pálmar til okkar, við ætluðum að fá hann til að skutla okkur í bæinn. Þegar að því var svo loksins komið um rúmlega tvö, sagðist Leó bara vera hakkaður og ekki meika það í bæinn. Ég lét það ekki á mig fá; neyddi Sóleyju (sem var að renna í hlað) með mér og Palli rúntaði með okkur.
Hann henti okkur út þegar Sirkus nálgaðist og ég og Sóley tókum okkur stöðu í biðröðinni. Ég sem Hákon Hákonarsson og hún sem hún sjálf. Þegar hún sá að stóri svarti maðurinn í dyrunum var ansi duglegur að kíkja á skilríki, hringid hún í Palla og hann kom og sótti hana. Ég lét hinsvegar enn ekki á mig fá og stóð í biðröðinni, þar til að mér var komið og þá framvísaði ég skilríkjum, tók sólgleraugun niður að hálfu, þuldi upp kennitöluna, og þetta skilaði mér inn. Þar hitti ég m.a. Birgi Ísleif Gunnarsson, Mulnings, Mezzías MC og gaur sem heitir Einar og vinnur á neðri hæð 12 tóna og er víst í hljómsveitinni Singapore Sling eftir allt saman. Ég spjallaði við alla þessa og fleiri. (Dansaði líka við afspyrnu hommalegan mann með sítt hár og feiiiiiiiita mottu í andlitinu. Hann var rauðhærður. Leit út einsog þýsk poppstjarna í upphafi níunda áratugarins. Heiða Kristín manaði mig til þessa.) Birgir Ísleifur hvatti mig til að gerast forseti NFMH; ég veit ekki með það. Pæli í því. Allavega, eftir sennilega tæpa tvo tíma á Sirkus (en samt bara einn bjór) stakk ég af og reyndi við hinn ágæta stað Kaupfélagið. Þar var búið að loka. Þá fór ég á Hús málarans. Þekkti engan þar, fékk mér staup, og fór. Prikið neitaði mér inngöngu. Nelly’s varð þá fyrir valinu. Þar hitti ég gamlan félaga, Alla porter. Annars ekkert spennandi þar, svo ég vakti Önnu vinkonu mína með símhringingu. Hef sennilega ætlað að biðja hana um að sækja mig, en hætt við þegar ég heyrði þreytuna í rödd hennar. Gekk þá út og rakst á gamla Rétthyltinga og Verzlinga, Arnar Bentsson, Halla módel og félaga þeirra Kára. Þegar ég var svona sjö, átta ára, var ég í einhverjum furðulegum leik með félaga mínum Atla K uppi við rafveituskúr í Brúnalandi. Leikurinn var einhvernveginn þannig að ég var með bundið fyrir augun og gekk um án þess að sjá nokkuð. Önnur atriði man ég ekki. Halli módel og Kári (þá ca. tólf ára) sáu þetta, nýttu tækifærið og grýttu mig með vatnsblöðrum. Ég trylltist, sótti hellu sem var í grenndinni og gerði atlögu til að kasta henni i þá. Hljóp svo heim, fór úr blautu fötunum og settist (einhverra hluta vegna) við ofninn í andyrinu undir teppi. Grét þar, aleinn með sjálfum mér. Atli K kom svo við og gáði hvort það væri í lagi með mig. Ég laug að honum að svo væri. Þetta man ég nokkuð greinilega.
Önnur saga úr barnæsku minni, og tengd þessum sömu mönnum og ég hitti í bænum, er þegar ég og Atli K vorum að krota á hús í Grundarlandi. Við vorum að teikna mynd af bekkjarfélaga okkar Ásgeiri, og persónugerðum hann sem einhverskonar spýtukall, eða tölvukall. Sennilega hið síðarnefnda því hann var mjög mikið í Nintendo tölvunni sinni. Meðan við erum að krota (með blýanti) koma Kári og einhverjir félagar hans að og skipa okkur að stroka þetta út. Hóta að lemja okkur annars. Við þorum ekki öðru og byrjum að stroka út, stjarfir af hræðslu, alveg þangað til að þeir eru úr augsýn. Í framhaldi af þessu kölluðum við þessa stráka the Eraser guys, enda vorum við svo klárir í ensku. Seinna meir stal ég mjög flottum sendibíl af Ásgeiri bekkjarfélaga sem hann fékk hjá tannlækninum í Fossvogsskóla. Þennan bíl á ég enn þann dag í dag. Oft og mörgum sinnum hef ég ætlað að skila honum, en aldrei fengið mig til þess.
Allavega, bæjarferðin...ég semsagt hitti þessa gaura í bænum og heilsaði þeim, því ég veit hverjir þeir eru og þeir vita hver ég er. Ég og Bentsson spjölluðum mikið saman, dáldið um kvenfólk, því ég þekki tvær stúlkur sem hann hetur átt stundir með. Annars var samtalið nokkuð almenns eðlis. Skrítnast þykir mér hvað okkur samdi í raun vel saman þessar mínútur sem við gengum saman niður Bankastræti og Austurstræti. Stefnan var á Club Diablo, en þar var víst ömurleg stemmning svo við hættum við að fara þar inn. Ætluðum að kíkja á NASA, en þar var búið að loka. Félagar Bentssons ætluðu að halda áfram í bænum en hvorki ég né hann meikuðum það og tókum þ.a.l. leigubíl saman heim. Ég stökk út við strætóskýlið við Aðalland og gekk þaðan heim. Sagði við hann rétt áður en ég stökk út "heyrðu, ég borga þér þetta bara næst þegar ég hitti þig...". Ég hitti hann sennilega næst árið 2003. Þar sem ég gekk niður Eyrarlandið sendi ég Guðríði, Sóleyju og Leó afar fyndið SMS. Það var einhvernveginn svona:

Er a leid heim ur bænum...skemmti mer vel, hefdi verid drullufint ad hafa tig med HAFDU TAD GOTT I FRAMTIDINNI

Fór svo í rúmið og vaknaði á sunnudegi um miðjan dag. Þetta var alveg frábært kvöld. Vildi að hver helgi hefði slíka eiginleika.
//
Ég og Leó erum að fara til Leeds. Sennilega Orri líka. Við förum út 21. ágúst og komum aftur 26. Missum af fyrsta skóladeginum.
//
Ég er að hugsa um að setja svona Archives form á síðuna, svo það lódist ekki alltaf allt sem ég hef skrifað, heldur geti maður skoðað einn mánuð í einu.

onsdag, juli 24

Var að sörfa, og við sörf síðunnar rokk.is rakst ég fyrir hendingu á síðu sem steikin Elliði heldur úti. Kunnugir þekkja Elliða sem gaurinn sem er með heví sítt hár, rokkari og vinur hans Baldurs; gaurinn sem var í MH. Hana er að finna hér. Lagið hans er að finna hér; náið samt í með varúð, ég á eftir að hlusta á þetta.
//


What Video Game Character Are You? I am an Asteroid.I am an Asteroid.


I am a drifter. I go where life leads, which makes me usually a very calm and content sort of person. That or thoroughly apathetic. Usually I keep on doing whatever I'm doing, and it takes something special to make me change my mind. What Video Game Character Are You?

Nú verða dæmdar lauslega tvær kvikmyndir sem ég sá mánudags- og þriðjudagskvöld:
Mánudagur: Four Rooms (1995)
Það sem kemur mér einna mest á óvart við þessa mynd er hversu margir virðast hafa séð hana. Í hvert skipti sem ég hef sagt "hey ég leigði mér fína mynd um daginn, Four Rooms heitir hún..." þá er fyrsta viðkvæði viðælenda minna: "Já, hún er fín, maður..." Samt hafði ég aldrei heyrt á hana minnst fyrr en ég renndi mér í gegnum bókina Quentin Tarantino: From A to Zed, en þar er minnst nokkrum sinnum á hana. Myndin fjallar um pikkaló á hóteli nokkru, sem er einn á vakt á gamlárskvöld og lendir í ansi skrautlegum uppákomum á fjórum herbergjum hótelsins. Þetta eru í raun fjórar sjálfstæðar sögur, leikstýrt af fjórum mismunandi leikstjórum; m.a. Robert Rodriguez og, jú, Tarantino. Mikill húmor svífur yfir vötnum alla myndina, og oft á tíðum mætti jafnvel segja að fáránleikinn næði yfirhöndinni. Sögurnar eru misgóðar, en allar góðar þó. Sú fyrsta (sem fjallar um nornir sem eru að reyna létta illum álögum af gyðju sem þær dýrka) og sú seinasta (Tarantino sagan; fjallar um menn sem líkja eftir veðmáli í Hitchcock mynd) eru kannski betri en hinar. Önnur fjallar um mann sem heldur að pikkalóinn Ted (Tim Roth) sé ástmaður konunnar sinnar, og sú þriðja um það þegar Ted passar börn einhvers mafíósa/auðkýfings, sem fer á fyllerí með konunni. Einsog kvikmyna er von og vísa kemur ýmislegt upp á. Myndin var saklaus skemmtun, skemmtilega fáránleg á köflum. Karakterinn Ted er fáránlegur, í ræðu og hreyfingum o.s.frv. 7/10
//
Þriðjudagur: Abres Los Ojos (1997, held ég)
Var seinna endurgerð í Hollywood undir heitinu Vanilla Sky. Stórmerkileg mynd, fjallar um mann sem er í haldi á geðsjúkrahúsi eftir að hafa verið ákærður fyrir morð. Sagan er sögð í brotum, draumi og veruleika, og maður veit í raun aldrei hvað er í raun að gerast og hvað ekki. Og ekki bætir úr að maðurinn er allan tímann með grímu fyrir andlitinu, því það aflagðist hroðalega í árekstri sem hann lenti í. Myndin getur tekið dálítið á taugarnar, hádramatísk tónlist, brostnar vonir, horfnar ástir og blablabla. Samt allt saman mjög gott, ekki misskilja mig. Mikil spenna í gangi. Dálítið torskilin en mér finnst hún alveg ganga upp í lokin. Ófyrirsjáanleg. Aumingja Penelope Cruz að þurfa að leika sama hlutverk tvisvar á mismunandi tungumálum. Leigi mér kannski Vanilla Sky við tækifæri svona til að heyra í Sigur Rós. 9/10
//
Hlakka annars bara til að komast heim, heilsa upp á Bura og Sunshine, vinna svo og komast í helgarfrí, þá verður gaman. Er boðið í afmæli á fös. og hvaðeina.

tirsdag, juli 23

Ótrúlegt hvað maður getur fokkast upp svona yfir sumartímann. Þetta segi ég, því að ég er búinn að vera í tölvunni í dáldinn tíma núna, og hún tjáði mér að í dag væri 21. júlí. Þetta taldi ég þ.a.l. óbifanlegan sannleika. Lét t.d. hafa eftir mér í samtali við Svölu að við ætttum nú afmæli eftir 7 daga. Við eigum hins vegar í raunveruleikanum afmæli eftir fimm daga. Mér fannst þetta bara svo furðulegt; að ég gæti ekki séð þetta sjálfur út. Fattaði þetta ekki fyrr en ég sá að seinasta blogg frá mér var dagsett 22.
//
Tvíbökurnar koma heim annað kvöld. Þær eru ábyggilega súkkulaðibrúnar og útriðnar. Neinei, segi svona, maður veit ekki, fær að heyra þetta allt á morgun.
Ég gerði mér ferð í dag niðrí Hagkaup og Apple-búð í Skeifunni. Hélt að ég gæti keypt fullt af ódýrum diskum í Hagkaupum, en það kom víst í ljós að það er bara þegar þeir eru með sér-þannig útsölu. Ég lét þá þá bara laga sólgleraugun mín og stakk af útí Apple-búð. Þeir tjáðu mér að nýr harður diskur í Kraftbókina mína kostaði tæpan 30.000,- kall. Það finnst mér heldur mikið.

mandag, juli 22

Ég var að eyða seinasta posti frá mér, var bara eitthvað kjaftæði. Annars er ég sjálfur farinn að hafa áhyggjur af geysilágri bloggtíðni minni. En það verður víst að hafa það; ég reyni að taka mig á.
//
Helgin var bara nokkuð góð, sérstaklega miðað við það að ég var að vinna. Á föstudeginum bauð gamall félagi minn, Kári Kongó, mér í afmælið sitt. Stemmningin var svona retro...þ.e. hann bauð gömlum félögum sínum úr Réttó að koma og rifja upp gömul kynni við aðra gamla félaga úr Réttó. Það var ágætt, en svona retro-partí geta samt aldrei náð neinu rosalegu flugi, því þeir sem eru þar samankomnir eru ekki vinir. Og vinátta er ákveðin forsenda góðra partía. Ég er ekki að segja að það hafi verið eitthvað ósætti milli fólks, en fólkið þekkist ekkert svo vel. Þetta partí fannst mér þó heppnast furðuvel, miðað við fyrri tilraunir. Ég skemmti mér allavega fínt, í félagsskapi manna einsog Atla K. (sem var með mér í hinni sálugu sveit Blowboys), Sverri Hermanns, Adda litla, Adda Wu, Kongó sjálfs o.fl. Anna keyrði mig svo heim um kl. 1, því ég var að fara að vinna kl. 8.
//
Á laugardeginum fór ég í annað afmæli, í þetta skiptið hjá Mörtu Pétursdóttur. Hún varð 19 ára, og hélt af því tilefni risapartí, sem taldi ábyggilega hátt í hundrað þegar mest var. Ég og restin af Nortón mættum snemma, og gæddum okkur á veitingum, en af þeim var krökkt. Smám saman bættist af fólki í sarpinn, og fyrr en varði var ekki þverfótað fyrir fólki. Ég var nú afar rólegur, með gin í glasi, og dillti mér hægt í takt við Jamiroquai og fleiri. Tók stuttan rúnt um plötusafnið hennar Mörtu. Það fannst mér athyglisvert. Kallið mig kynhyggjumann, en ég bara á mjög erfitt með að meðtaka það, að það séu til stelpur sem hlusti á plötur einsog Go Plastic Squarepushers', eða hvað sem Autechre hafa sent frá sér. Þessar stelpur heita engu að síður Marta og Helga Björg. Þessar hugmyndir stafa sennilega af því að allt kvenfólk í mínu umhverfi hefur verið frekar lokað fyrir tónlist, þá sérstaklega ef hún rennur ekki í gegn einsog laxerolía við fyrstu hlustun. Fyrr en nú. Nú er ekkert nema einhverjir indí-popp/rokk geðsjúklingar í kringum mig. En ég hef svosem gaman af því líka, meiraðsegja bara dáldið mikið gaman.
Ég og restin af Nortón tókum svo leigara heim um kl. 3, eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir til að fá einhvern til að sækja mig.
//
Sunnudagurinn var sennilega sá dagur, þar sem hefur aldrei nokkurntímann verið minna að gera í vinnunni. Ég var bara í tómu rugli, teiknaði kóver á næstu plötu (veit ekki hvort við notum það samt), skrifaði löng ímeil, las greinar á huga.is, lét mig dreyma um Reading. Já; Reading. Reading er tónlistarhátið sem fer fram í Reading í Englandi helgina 23. -25. ágúst. Eitt skil ég ekki fullkomlega, en á sama tíma fer fram hátíð í Leeds. Á þessum tveimur hátíðum eru sömu hljómsveitir, bara á mismunandi tímum. Þetta hlýtur að merkja að Reading og Leeds sé í raun sama hátíð, en sé bara stækkuð með þessum hætti. Það er uppselt á Reading, en ennþá til miðar á Leeds á £90 (ca. 12000 kall). Það sem vekur þó áhuga minn á þessari hátíð er fokking line-uppið, sem er eitt það magnaðasta sem ég man eftir að hafa séð á tónlistarhátíð. Sjáið bara: Guns'n'Roses, Prodigy, Strokes, Pulp, Jane's Addiction, Weezer, White Stripes, Mercury Rev, Foo Fighters, Muse, Ash, Hives, Spiritualized, And You Will Know Us By The Trail Of Dead, Cornershop, Vines, Guided by Voices, Black Rebel Motorcycle Club, Alec Empire, Streets, Herbaliser, Anti-Pop Consortium, Aphex Twin, Luke Vibert, Sick of it All, International (Noise) Conspiracy...
...og þetta er bara það sem ég sýndi einhvern áhuga. Svo stóð líka more acts to be announced. Þetta vakti mikinn áhuga hjá mér, og er í alvörunni að melta þetta, veit ekki hvort það sé óðs manns æði svona miðað við fjárhag og svona. Ef einhver vill koma með mér, látið mig vita!
//
Í gærkvöldi hékk ég svo í Perfect Dark, sem er magnaður tölvuleikur. Ég og Káti (hahaha) og Leó og Orri, drápum hvorn annan með mikilli gleði. Svo sofnaði ég við fagran (?) undirleik sveitarinnar Pan Sonic. Hlustaði reyndar á diskinn allan í morgun, veit ekki hvað mér finnst, hann var töff, en jafnaðist ekkert á við tónleikana sem ég og Orri fórum á 8. apríl 2001. Það voru góðir tónleikar, og kostaði líka bara 800,- kall, ef ég man rétt. Framundan hjá mér í dag er hlustun tónlistar, enda mikið sem ég þarf að komast yfir: magndiskakaup eru erfiður bransi.
//
Ég komst að því í vinnunni á laugardag að ein sú týpa sem ég þoli minnst af öllum týpum eru feitar 25 ára stelpur sem halda að með því að mála sig geðveikt mikið, þá haldi fólk að þær séu 18 ára. Þessar týpur eiga oft eitt barn, en engan kærasta. Og eru alltaf feitar. Veit einhver hvaða fólk ég er að tala um? Þetta fólk hefur t.d. gaman af Djúpu Lauginni, kemur jafnvel fram í henni...ef ég væri fullur og rækist á svona stelpu myndi ég æla á hana. (Hafðu samt engar áhyggjur Bryndís, þú fellur ekki undir þessa skilgreiningu)

onsdag, juli 17

Lentur kl. 11:38 í KEFlavík. Búinn að eyða síðastliðnum dögum íkóngsins København einsog einhver á viltausum aldri myndi segja. En þetta voru alveg illa djöfulli góðir dagar. Ég lenti að morgni föstudagsins 12. júlí og flaug aftur heim í morgun. Ég gisti á Rantzausgade þar sem Svala og vinkonur hennar tvær; Signý og Bryndís, búa í sumar. Fín íbúð; lítil, kósí, ósköp þægileg bara. Ég og Svala - og Signý og Bryndís skiptumst á að sofa í hjónarúminu á staðnum, eða á dýnu sem við komum fyrir í stofunni. Það fyrirkomulag hentaði mjög vel.
//
Þegar ég lenti á Kastrup, þreyttur og frekar svangur að mig minnir, þá fetaði ég mig gegnum flugstöðina í leit að farangrinum mínum. Á meðan ég beið við færibandið pirraði ég mig (og reyndar allir aðrir sem biðu) á tveimur fávitum sem voru geðveikt fullir og voru að rífast um ekki rassgat, ógeðslega hátt. Þeir voru að ónáða fólk, og danskir öryggisverðir hefðu átt að kippa þeim úr umferð. En ég flúði um leið og ég fékk töskurnar í hendurnar og þá tók við leitin að lestinni sem kæmi til með að flytja mig inn í hjarta Kaupmannahafnar. Á leiðinni að þeirri lest undraði ég mig á lágu bjórverði...eða ca. 300 íslenskar fyrir kippu af Tuborg. Ég beið svo í röð eftir að kaupa miða með lestinni, gerði það náttúrulega á dönsku, og við tók enn ein biðin - þá eftir lest. En sú bið var ekki löng, og áður en varði sat ég í mjúku sæti og rann mjúklega í átt að miðborginni. Þar steig ég út og nokkrum mínútum seinna kom ég auga á Svölu, sem hafði komið að sækja mig. Það voru fagnaðarfundir, ekki við öðru að búast, og svo hlupum við á eftir leið 8, sem flutti okkur heim að dyrum. Þá fór ég nú bara að sofa.
Vaknaði rúmlega hádegi, heilsaði stelpunum öllum, og svo héldum við öll niður að Ráðhústorgi, sem er, fyrir þá sem ekki vita, aðaltorg Kaupmannahafnar. Þar nærri þurftu stelpurnar aðeins að díla við einhvern McDonalds gæja (þær vinna þar) og svo var það bara rúntur um borgina. En hann var ekkert svo langur, því stelpunum hafði verið boðið í partí til félaga síns Nickolai, sem býr í Helsingør. Við vorum ennþá södd eftir Burger King, svo það var enginn kvöldmatur. Við skiptum um föt, og stigum um borð í lestina til Hesingjaeyrar, en ferðin tók um klukkustund. Þegar á lestarstöðina var komið, sóttu félagarnir Nickolai og Ronnie okkur og leyfðu okkur að hlusta á über-hallærilsega euro-teknó músík á leiðinni í partíið. Mjög hátt. Nickolai lítur út einsog 29 ára gamall Verzlingur, en Ronnie einsog 17 ára Verzlingur. Þeir eru báðir fæddir 1982. Íbúðin sem Nickolai og móðir hans búa í, er afar sorgleg. Pínulítil, fátækleg fram úr hófi, og stelpurnar þrjár búa í rauninni betur. Sennilega eitthvað félagsmála keis í gangi...maður veit ekki.
Í íbúðinni var maður að nafni Peter í herbergi Nicks. Seinna kom í ljós, að þeir þekkjast lítið sem ekkert, hann bara var þarna. Það finnst mér fyndið. Stemmningin var svo fáránleg þarna að við drifum okkur að opna bjór. Þess hefði ekki þurft, því Nick & Co. höfðu keypt Vodka, einhverskonar viskí (sem bragðaðist reyndar mjög vel) og Romm, ef ég man rétt. Einnig voru þeir gjöfulir á bjórinn. Það er kannski skiljanlegt þar sem verðið er nú ekki mjög hátt. Stuttu síðar bættust einhverjar ljóshærðar danskar stelpur við í hópinn. Þær voru ömurlegar, ekkert mjög félagslyndar. En eftir því sem bjórarnir urðu fleiri, reyndist mér auðveldara að skilja dönskuna, og ég gat haldið uppi samræðum, án tiltölulegra vandkvæða. Þær fóru fyrst og fremst fram við Ronnie í upphafi, þar sem hann sat næst mér. Við töluðum um pólitísk málefni. Þar kom í ljós að flestir hans félagar eru vinstri-sinnaðir (einsog Danmörk er næstum öll – kem betur að því seinna) og Verzlingalúkkið því dáldið fyndið. Hann benti mér á að í horni herbergisins sem við værum í væri risavaxinn rauður Sovétríkjafáni. Ég stökk til að hrópaði „Heyeyyeyeyeye!!!" og veifaði honum. Það fannst fólkinu fyndið. Signý kallaði mig dóna, því stuttu áður hafði ég tekið ófrjálsri hendi spil sem lá í hillu, og hét Stars of Europe. Það var einhverskonar Evrópusambandsspil, og það fannst mér bæði fyndið og merkilegt.
//
En eftir því sem leið á kvöldið og bjórarnir urðu fleiri og tónlistin hærri og fólkið færra þá var mér hætt að lítast á blikuna, og ég og Svala stungum af til Kaupmannahafnar með lest. Ég er mjög ánægður með þá ákvörðun, því stelpurnar festust í Helsingør til morguns og gistu í íbúðinni hans Nicks. Það var fínt, þá fengum ég og Svala allavega að sofa í hjónarúminu.
//
Daginn eftir er laugardagur. Signý sem og Tvíburarnir eiga afmæli. Ég og Svala höldum í bæinn og endum í Nyhavn, sem er frábært hverfi og stútfullt af kaffihúsum og fólki til að fylla þau. Þar höfðum við það gott í dáldinn tíma. Svo fórum við út að borða með stelpunum. Það var fínt og ódýrt. Svo héldum við í fríríkið Kristjaníu. Frábær stemmning þar. Allir illa tjillaðir og smókaðir. Þar héldum við til, bókstaflega í skjóli kærasta Önnu (Önnu dönsku, úr MH, ’84 módel); Thomas. Hann er barónn í Kristjaníu, og maður fann fyrir því að fólk bar einsog óttablandna virðingu fyrir honum. Hann fékk (að mér sýndist) ókeypis áfengi á barnum og dældi því í afmælisbarnið, með þeim afleiðingum að á heimleiðinni heyrðist ekkert nema rödd Signýjar. Enginn vélarniður eða hlátur eða slíkt. Bara hennar frásagnir af því sem var nýskeð. Eftir að hafa haft það gott í skjóli Thomasar, fórum við á næturklúbbinn Loppen innan veggja Kristjaníu. Thomas reyndar prúttaði verðið á miðanum inn talsvert niður. Getur varla verið lítið mál ef maður á þrjá bása á Pusher Street. Fínt kveld.
//
Á sunnudeginum fóru Signý og Bryndís í vinnuna, en ég og Svala gengum um Nørrebro, og niður í Frederiksberg, og höfðum það gott þar í hinum svokallaða Frederiskberg Have. Svona vin í stórborginni. Svo fórum við í bæinn og heilsuðum upp á stelpurnar. Ákváðum að hitta þær eftir mat á Ráhðustorginu. Ég og Svala skelltum okkur þá eitthvað indverskt pleis, sem var bara fínt. Stelpurnar voru þreyttar og við líka, og eftir meira en klukkustundar setu á bekk á torginu héldum við heim. Þar ákváðum við að fara út og leita að barnum Stengade 30 sem einhver gaur sem Bryndís hafði hitt nokkrum kvöldum áður hafði bent henni á. En hann hafði ekki bara bent henni á bar, hann hafði einnig skrifað smásögu sem hét eftir henni: Bryndís. Hann var (og er) rithöfundur. En nóg um hann; okkur gekk vægast sagt brösulega að finna staðinn, en það hafðist á endanum eftir samtal við einhverja aðflutta Dani. Þá kom í ljós að Stengade 30 er til húsa á Stengade 18. Það var vandamálið. Staðurinn var alveg frábær, dulinn í miðri íbúðarbyggð, og þegar ég benti fyrst á húsið, sem var myrkt og með bíl í heimreiðinni og sagði: „Þetta er örugglega staðurinn..." í gríni, þá grunaði okkur ekki að þetta væri staðurinn. Hann hét Stengade 30/STALINGRAD. HAHAhahahaha. Reyndar var ekki neitt í gangi, og við vorum eina fólkið þar inni að undanskildum tveimur barþjónum, en við fundum samt að þetta var einhver magnaður staður. Verst að ég hafi þurft að fara heim áður en það var komið að einhverju þema-kvöldi, en slíkt kvöld var einmitt í kvöld að ég held. Við vorum ánægð með fundinn og héldum heim.
//
Á mánudeginum hafði ég einsett mér að versla. Þessvegna ákvað ég að vakna aðeins fyrr en venjulega. Þ.e.a.s. fyrir hádegi. Við fórum öll, nema Bryndís, í bæinn og leituðum að einhverjum grúví plötubúðum og fatabúðum. Af þeim var nóg, þó svo að engin plötubúð hafi verið virkilega góð. En afrakstur á því sviði var samt góður, og eftir ferðina alla sit ég uppi með 14 nýja diska. (Reyndar eru tveir þeirra keyptir í fríhöfninni, og þrír á Strikinu.) Þeir eru:

The Beta Band: The Three E.P.’s
...And You Will Know Us By The Trail Of Dead: Source Tags & Code
Sofandi: Ugly Demos
Ýmsir: Hotel Stadt Berlin (A showcase of new electronic record labels from Berlin)
Super Furry Animals: Rings Around the World
Isan: Clockwork Menagerie
The American Analog Set: Know By Heart
The American Analog Set: Updates
Sofus Forsberg: NO/1
Pizzicato Five: Happy End of the World
Pink Floyd: Wish You Were Here
The Chemical Brothers: Exit Planet Dust
Ýmsir: So Blue, So Funky (Heroes of the Hammond)
Autechre: LP5

Annað dót sem ég keypti í þessari löngu verslunarferð (tók allan daginn, og náði ekki að klára) var: bleikt leður-lakkrísbindi, afmælisgjafir handa Kára og Orra (berast seint, en skiptir engu máli): Plakat og LaserDisc, og fjórar flíkur (voru reyndar keyptar daginn eftir, í H&M)
Um kvöldið fórum við og hittum Íslendinga á einhverjum skíta-karókí bar. Það sem var kannski markverðast það kvöld var að ég söng 2 become 1 við mikinn fögnuð viðstaddra. Þegar ég var að hefja leikinn kom að mér Dani, sem hafði verið að ónaða mig allta kvöldið og reyndi að taka af mér sólgleraugun sem ég var með. Á leiðnni heim talaði ég bara dösnku. (Já, ég keypti mér semsagt sólgelraugu, sem ég er að hugsa um að gera nokkuð fastan hluta af ímynd minni, og Daninn benti mér á að ég væri nú innanhúss. Ég svaraði honum einfaldega: „Ja...men det er så meget kul, tror du ik’?")
//
Á þriðjudeginum kláruðum ég og Svala verslunartúrinn áður en við héldum af stað til Vedbæk, sem er svona ca. 20 km fyrir utan Köben, að hitta frænku mína og hennar fjölskyldu sem býr þar. Við fengum Lasagne og salat og ís og það var mjög fínt. Þau höfðu frá nógu að segja, reyndar svo miklu að maður gat varla sagt frá nokkru sjálfur. En í spjallinu við þau komst ég að því að Danmörk er sennilega kommúnískasta samfélag Vesturlanda. Allir hafa það jafngott eiginlega. Það er ekki fyrr en maður er farinn að þéna milljón á mánuði eða eitthvað sem maður er farinn að hafa það betra. Og þ.a.l. eru skattar háir, og því hærri tekjur, því hærri skattar o.s.frv., en þetta gerir það að verkum að mjög fáum líður illa í Danmörku. Og það er mjög gott mál. Öll menntun er t.d. ókeypis í Danmörku, og reyndar er það þannig að þú færð borgað fyrir að læra þar. Pælið í því að fá 20.000 kall á mánuði bara fyrir það að vera í MH. Það væri magnað. Þannig er það í Danmörku. Mér líst vel á Danmörku.
En annars var þetta bara ágætis kvöldstund þarna í Vedbæk, rólegt og gott, dáldil tilbreyting frá undangengum kvöldum. Fannst samt rosalega skrítið hvað frænka mín og jafnaldra Greta María er skrítin. Við töluðumst varla við, og foreldrarnir höfðu bara mun meira spennandi hluti að segja. Stórskrítið. Einstaklega fráhrindandi manneskja.
Svo héldum við Svala heim og áttum bara gott tjill heima með stelpunum fram á nótt.
//
Vaknaði svo snemma í morgun. Klæddi mig, kláraði að pakka, kvaddi Signýju og Bryndísi og þakkaði fyrir mig, og svo héldum við Svala niður á Høvedbanegården. Fá orð voru sögð, enda lítið að segja nema bless og ég elska þig.
Heimferðin gekk smurt og nú er ég kominn hingað.
//
Þegar ég vaknaði annaðhvort á mánudags- eða þriðjudagsmorgun (ég man það ekki), þá var mig búið að dreyma alveg óhemju langan draum. Hann náði yfir ýmislegt og það komu ansi margir fyrir í honum. Það væri kannski ekki markvert nema fyrir það að gamall vinur minn Bragi Þór Antoníusson kom fyrir í honum. Honum brá reyndar bara fyrir, en ég mundi það samt skýrt og greinilega um morguninn. Þegar ég lendi svo í Keflavík, er mér tilkynnt í bílnum á leiðinni í Bjarmalandið að mamma hans hafi látist aðfaranótt mánudags. Kannski tilviljun; kannski eitthvað meira.
//
Veit ekki hvað er framundan. Pæli hvernig er hjá stelpunum á Spáni. Undralandið víst við það að seljast upp. Gaman gaman.

torsdag, juli 11

Jæja. Þá eru bara innan við tíu mínútur þar til ég held í reisuna mína. Jújú, ég er að fara að fljúga til Kaupmannahafnar að hitta hana Svölu mína. Ég verð þar þangað til á miðvikudaginn. Mér þykir ólíklegt að ég bloggi nokkuð á meðan, en aldrei að vita samt...betra að kíkja reglulega ef þið viljið ekki missa af neinu. Það bíður mín semsagt ekkert nema øl og smørrebrød.
//
Ég og Leó verðum í Fókus á morgun. Fylgist með því.
//
Ég svitnaði mjög mikið i vinnunni í dag.
Bless bless.

tirsdag, juli 9

Ég lenti í miður skemmtilegri reynslu um leið og ég lauk við að rita bloggið mitt í gærkvöldi. Ég fór í rúmið og þá fannst mér einsog það væri sandur í rúminu svo ég strauk hann burtu. Svo sá ég lítinn blett ofarlega í lakinu og annan sambærilegan á koddaverinu. Þetta var æla, og sandurinnvoru þurr ælukorn. Þetta fannst mér ekki nógu gaman, enda man ég ekki eftir að þetta uppkast hafi átt sér stað. Kannski lak útum munnvikin í svefni...
//
Í dag tók ég því rólega, hlustaði á hiphopp og hékk svo með félögunum Leó og Pálmari. Við kíktum í bæinn og komumst að því að hvorki meira né minna en 5 eintök eru seld í Hljómalind, ekkert í Þrumunni, og við vitum ekki með 12 tóna. Við unum því bara ágætlega. Leó stofnaði nýpönk hljómsveit ásamt Sigga T og Kalla Billich, og fór fyrsta æfingin fram áðan og var víst lagður grunnur að tveimur lögum. Það verður spennandi að heyra. Ég og Leó djömmuðum líka aðeins áðan, með mig á trommunum hans Sigga og Leó á gítar og Juno. Kannski að þær tilraunir muni skila sér á næstu sumarplötu. Annað sem ég gerði var að fá það staðfest að sunnudagurinn fengist ábyggilega greiddur og svo hringdi ég í Sólrúnu, hóruna sem er formaður MORFÍS ráðs. Seinast þegar við töluðumst æsti ég mig talsvert en núna var ég ákveðinn, en samt rólegur. Sagðist hafa rætt við lögfræðinga, sem ég gerði, og komist að því að best væri að rita Árna Þór Vigfússyni, fávitanum sem stjórnar SkjáEinum bréf. Ef það bæri ekki árangur, jafnvel sækja hann til saka. Sólrúnu leist ekki alveg nógu vel á þetta, og sagði að þá fengi Morfís ábyggilega aldrei að sjást í sjónvarpi aftur. Gæti verið, en við látum ekki fokka í okkur. Hún ætlaði að pæla þetta aðeins. Ef hún neitar ætla ég að skrifa í Moggann, og aðeins að æsa mig þar við hana og Árna, og láta þetta svo bara vera...held ég.
//
Það er komin upp skoðanakönnun á Huga.is um Undralandið. 22% (af 18) finnst platan léleg, 6% finnst hún frábær og öðrum 6% ágæt. 11% segja að pælingarnar séu góðar en meiri vinnu sé þörf og 56% viðurkenna kúkslegt eðli sitt, og segjast ekki eiga plötuna...enn þá. Ég reiknaði aðeins og komst að því að 1 einstaklingur segir hún sé frábær (það er ég). Einn að hún sé ágæt, tveir að við séum góðir pælarar, fjórir að hún sé léleg og tíu eru kúkar. Ég er ekki viss um að 7 manns hafi heyrt plötuna, ég þekki allavega tvo sem keyptu hana og hvorugur þeirra hefur greitt þarna atkvæði, svo ég tel að einhver sé að reyna koma óorði á mig og Leó með því að greiða lélegu atkvæði. Kemur í ljós.
//
Mér finnst ákveðin mistök hafa átt sér stað við framleiðslu Mix Exotic. Sá drykkur býður nefnilega upp á miklu betra bragð heldur en er svo af honum. Með því að minnka sætuna og auka sýruna, væri drykkurinn mjög góður. En sumir höndla náttla ekki súrt, og finnst súrt nammi jafnvel vont. Það er fáránlegt.
//
Ég er búinn að bæta tveimur tenglum við hérna til hægri. Ég hef nú áður tengt á bróður minn, en nú þarf ekki að leita í gegnum textann til að hafa upp á honum. Einnig er þarna tengill á mjög fyndið verkefni sem einhver gaur í Bandaríkjunum setti af stað í október 1998. Stórskemmtilegt að sjá breytingarnar. Líka mjög fyndið að maðurinn skuli alltaf vera með sama svip, hlýtur að vera dáldið erfitt.

mandag, juli 8

Þetta er nú bara næstum því skuggalegt, aldrei áður hefur liðið svona langt milli blogga, en er þetta ekki bara svona? Er maður ekki alltaf virkastur í öllu fyrst um sinn, og svo slappast maður, áhuginn dvínar, og maður sinnir þessu ekki jafnvel. Kannski tímaskorti sé að hluta um að kenna. En ég ætla allavega að fara yfir helgina með svona innskotum. Á fimmtudagskvöldið fór ég á tónleika með skosku sveitinni Travis. Akkúrat þegar ég var að ganga út úr húsi, þá hringdi síminn og einhver stelpa sagði hæ á hinum endanum. Það tók ég sem merki um að hún þekkti mig. Ég hélt að þetta væri Anna Dröfn, vinkona mín til margra ára og alveg hreint frábær manneskja, en svo var ekki. Þetta var engin önnur en kærastan mín, hún Svala. Hún lét mig vita af því að plön mín um að fljúga út til hennar í lok júlí væru ekki alveg nógu góð (skildi reyndar röksemdirnar ekki alveg), en sagði að komandi helgi (12.-14. júlí) væri frábær. Ég tók það þá til athugunar, og eftir tónleika bókaði ég far út. Ég verð úti í rúma fimm daga. Ég hlakka til. Allavega, ég gekk til tvíbbanna og fór þaðan á tónleikana. Þeir sem fóru voru ég og þær og Vala og Sóley. Just me and the girls. Leaves höfðu lokið sér af þegar við komum, en mér var sama. Travis mættu svo eldhressir og kláruðu sitt á rétt rúmum klukkutíma, sem mér fannst skrýtið, þar sem þeir eiga þrjár plötur að baki, og eru meiraðsegja þekktir fyrir kover (AC/DC, Britney Spears). En þeir skiluðu sínu ágætlega, samt mjög svipað og að hlusta á plötuna bara, aðeins meira rokk: Meiri rafmagnsgítar og minni kassagítar. Tónleikarnir voru fínir, en alls ekki miðaverðsins (4200,- kr.) virði. Ég hef farið á mun betri tónleika fyrir 800,- kall. Það voru t.d. tónleikar finnsku sveitarinnar Pan Sonic, sem voru geðveikir.
//
Mætti góður í vinnunna á föstudegi, og horfði á heimildarmynd um Woodstock að vinnu lokinni. Hún var löng, en nokkuð merkileg. Kári og Leó (og fleiri) voru í Viðey á tónlistarhátíð Rúnksins. Leó segir að það sé það skemmtilegasta sem hann hafi gert. Kári er ekki sammála en fannst þetta samt nokkuð magnað. Ef ég hefði verið í fríi hefði ég farið. Var meiraðsegja að pæla í því, en varð litið útum gluggann og veðrið var hreint út sagt ógeðslegt. Þá ákvað ég að vinna bara fulla vakt og pæla ekkert í því.
//
Á laugardeginum fór ég úr vinnu klukkan 19, til þess að mæta í afmælisveislu sem Leó stóð fyrir (varð 18 ára daginn áður). Þar var grillaður ágætis matur og einungis voru viðstaddir menn af karlkyni. Bjór var drukkinn með, og seinna um kvöldið færðist vodka í spilið. Ég átti mörg góð spjöll, við marga góða menn. En partíið varð svo villt, t.d. sökum mikillar ölvunar mín og Pálmars, að ein rúða sprakk og tveir matardiskar brotnuðu. Seinni hluti partísins er svo hálfgerð móða. Man að Gummi lati og Grétar og Maggi Leifs voru allavega komnir. Mér fannst skrítið að hitta Grétar, hélt hann stundaði ekki svona samkomur lengur. Hann var að vísu ekki að drekka. Hann sagðist vera farinn að draga úr ástundun Fíladelfíu, en kannski sagði hann það bara, til að hljóta ekki gagnrýni. Hann var allavega sami maður og ég minnist hans síðan í vetur. Svo kemst ég barasta að því áðan í samtali við tvíburana sem höfðu hitt Höllu Kristínu og einhverja fleiri í Þjórsárdal þetta sama kvöld, að Grétar er á föstu. Á barasta einhverja kærustu sem er barnabarn aðalgæjans í Fíladelfíu. Þau eru víst búin að vera saman í mánuð, og núna er hún í Lundúnum í tvo. Þetta kom mér gjörsamlega á óvart, og ég velti meiraðsegja fyrir mér hvort hans fyrrverandi til tveggja ára, Bryndís, viti af þessu. Ég vona það allavega, annars veit hún það núna. Og fyrst ég er á annað borð búinn að nefna hana, mun ég gera hana að umtalsefni. Þannig er að í vor tók félagi minn Dangerous Dave eftir henni og hafði orð á því að hún væri myndarleg, og áhugaverð í alla staði. Mér fannst dálítið fyndið að hugsa mér þau sem par, því hann er allur stór og mikill, Verzlingur og eitthvað; en hún er öll hin smágerðasta og fínlega, MHingur og dáldið svona (meðvitað eða ómeðvitað) indí/artí. En við nánari skoðun kemur í ljós að þau myndu verða frábært par. Þannig er að helstu áhugamál Davíðs eru t.d. kvikmyndir (hann hefur í alvöru áhuga, ekki einsog allar gelgjurnar sem segjast hafa áhuga á kvikmundum af því þær fara á frumsýningar á föstudögum; hann hefur líka gaman af listrænum kvikmyndum, og er sérstakur áhugamaður um B-myndir og Hong Kong myndir), rokkmúsík (t.a.m. Iron Maiden), og svo tölvuleikir og leikjatölvur. Hann er eigandi PS2. Ef áhugamál Bryndísar væru listuð á svipaðan hátt, myndu nákvæmlega sömu hlutir koma í ljós. Hann myndi nenna að horfa á Underground með henni og hlusta á No Smoking Band og spila GTA3 o.s.frv. Frá mínum sjónarhóli hafa þau bæði dottið í lukkupottinn, en verða náttúrulega að fá að dæma það sjálf.
En...ég semsagt var orðinn nokkuð drukkinn og kastaði upp í garðinn hans Leós og í götunni hans og gekk svo heim. Þá hélt ég að klukkan væri svona 3, Leó sagði mér í dag að hún hefði verið um miðnætti. Allavega ég fór bara heim og var svo vakinn snemma í morgun, því ég átti að fara í vinnuna. Var mættur þar á réttum tíma, en var svo óendanlega þunnur að ég ákvað klukkan 9:30 að ég væri óvinnufær. Ég vildi náttúrulega ekki fara heim og segja þeim að ég gæti ekki unnið sökum timburmanna, svo ég fór til Leós og lagði mig þar, og hékk þar svo alveg til um 19, en þá sótti Anna mig og við rúntuðum aðeins og hún keyrði mig svo heim. En ég hékk semsagt hjá Leó í 9 tíma að gera ekki rass. Það var samt ágætt og hann kenndi mér aðeins á gítar. Þegar ég var að borða kvöldmat hafði ég orð á því við mömmu og pabba að þau hefðu nú farið snemma í háttinn, fyrst þau voru sofnuð þegar ég á að hafa komið heim, eða um miðnætti. Þau sögðu neinei, fóru víst í rúmið um kl. 2. Það fannst mér skrítið. Eftir matinn sagðist mamma hafa haft dálitlar áhyggjur af mér við heimkomu í gær, og sagði mér að ég hefði nú ekki verið alveg allsgáður. Ég hef semsagt komið alveg fokking blindfullur heim í gær, þar sem þau voru að horfa á imbann, og örugglega eitthvað ruglað í þeim, áður en ég fór í rúmið. Þessu man ég ekki eftir, og ég hélt satt best að segja að ég hefði hleypt sjálfum mér inn, og læðst um húsið, til þess að vekja þau ekki. Það er greinilega misskilningur. En verður bara að hafa það; hún var heldur ekkert að skamma mig, bara að benda mér á þetta. Það er ágætt, enda var ég alltof fullur.
//
Ég fór heim til Völu í kvöld og spjallaði við stelpurnar sem voru þá komnar úr útilegunni. Við horfðum á vídeóið sem þær tóku, en þegar af því eru liðnar svona 20 mín., þá byrjar Guðríður alltíeinu að spóla áfram yfir eitthvað ákveðið samtal. Ég og Orri bregðumst ókvæða við, og viljum náttúrulega fá að sjá samtalið, enda er ekkert hægt að sýna manni ákveðna hluta af kvöldinu, og sleppa öðrum. Svo við göngum út. Maður getur bara einfaldlega ekki látið bjóða sér hvaða framkomu sem er, og maður verður að sýna fólki hvenær manni er ofboðið. Ég erfi þetta ekkert við þær, en núna vita þær að þetta finnst mér ekki hæfa. Einhverra hluta vegna lét Leó bjóða sér þetta, það skil ég ekki, kannski hann láti bara bjóða sér hvaðsemer? Svo ég og Orri fórum bara út að labba, hittum Elfu Hrund, fyrrverandi góðvinkonu mína, og kærustu síðan í ellefu ára bekk til sex vikna. Við fórum yfir stöðuna í dag, og ræddum um hina og þessa. Mér þykir alltaf dálítið vænt um Elfu, m.a. vegna þess að ég var skotinn í henni svo lengi, örugglega rúm tvö ár. Mér er allavega ekki sama hvað hún er að gera, og til allrar hamingju segist hún vera hætt að reykja. Eftir samtalið fórum ég Orri að horfa á Big Lebowski í svona tíunda skipti. Sú mynd virðist bara verða betri og betri. Það er ekki einn rammi í myndinni sem hægt er að finna að. Frábær mynd, af sama klassa og Magnolia og Requiem for a Dream. Þetta eru allt svona myndir sem fá ***** af fjórum mögulegum.
//
Í fríinu mínu sl. miðvikudag og fimmtudag keypti ég mér sex diska að ég held. Ég var búinn að tjá mig um Rímnamín, en hina pikkaði ég upp á útsölu hjá Japis í Brautarholti, sem mér sýndist vera að loka. Þá er bara Laugavegurinn eftir, og hann er að ég held á útleið. Allavega þar náði ég mér í frumburð Badly Drawn Boy, Stakes is High með De La Soul (svona til að næra nýfundinn hiphopp áhuga minn), Aaltopiiri með Pan Sonic (sem er noise-tónlist á heimsmælikvarða), Since I Left You með The Avalanches sem er svona sampltónlist, virkar dáldið einsog mixdiskur, en hljómar vel, sérstaklega góður í partíið; og safn með verkum eftir Erik Satie. Eins og gefur að skilja er ég ekki búinn að hlusta á neitt af þessu, en aldrei að vita nema ég riti stuttan dóm um hvern og einn þegar ég er búinn að mynda mér skoðun.

torsdag, juli 4

Enn og aftur verður mér rætt um Leó og hans miðil sem ber heitið Tjáning er góð afþreying. Hann ritar:

atli fékk mig til að trúa að hann hefði ekki komið nálægt þessu dæmi í púlsinum. mér finnst gaman að trúa skemmtilegum hlutum og það er auðvelt að ljúga að mér. ég laug líka að Guðríði að einhver stelpa hefði kúkað á mig og að ég hefði fílað það. Hún trúði því. Guðríður vill líka trúa skemmtilegum hlutum. Nú er ég farinn.

Ótrúlegt að maðurinn telji að ég hafi vísvitandi logið þessu að honum. Skil ekki alveg hvernig hann getur beitt þeirri túlkun á málið. Ég sagði einfaldlega „Nú? Kúl.“ Kannski var það yfir strikið. Ég vildi einnig líma þennan texta inn útaf seinni hluta hans, sem er mjög fyndinn.
//
Þakka Guði (?) fyrir að hafa verið í fríi í dag. Veðrið var mjög gott, og það á að verða enn betra á morgun. Auk þess verður fullt af diskum á hálfvirði í gamla gamla Japis í Brautarholti. Er að pæla í að vakna snemma (um kl. 10) og hendast útí sólbað, far svo niðrí bæ um hádegi, hitta kannski Kára og tékka á þessu. Annars keypti ég mér disk í dag. Var bara að lesa Moggann og sá Rímnamín auglýstan á 990 kr. fyrir þá sem eru með Frelsi. Ég náttla hringdi beint í mína innanhúss mannsekju hjá Símanum og spurði hvort hún gæti ekki reddað mér svoleiðis með 990 króna afsæltti. Hún sagðist mögulega geta það eftir svona mánuð. Ég sagði fokkitt og keyrði niðreftir og keypti hann. Eftir fyrstu hlustun stendur hann í 6 af 10. Móri, Forgotten Lores og Bæjarins Beztu eiga beztu lögin. Maður verður að vera með í hip-hop heiminum, skiljiði? Annað þessu lauslega tengt er að það var hringt í mig í gær frá Gallup og ég beðinn um að vera með í svona ráði sem Síminn væri að setja saman og ætti að fjalla um Frelsi. Ég gerði mér upp áhuga áður en ég tilkynnti konunni að ég væri þegar í þessu ráði. Það fannst henni fyndið. Hún bauð mér þá bara Vífilfell í staðinn og ég sagði já. Þar með er ég í föstum rýnihópum hjá Símanum, Landsbankanum og Vífilfelli. Ég stjórna hinum íslenska markaði.
//
Er á MSN núna einsog oft áður. Er currently í spjalli við Palla sem hefur ýmislegt steikt að segja einsog venjulega, hérna mun ég birta nokkra samhengislausa gullmola:
palli says:
ég hefði viljað byrjað í 8.bekk
palli says:
en þa reið mar bara súper gellum
palli says:
í undralandi

palli says:
já svipað og að kúka
palli says:
hefuru krúnkað þér?

palli says:
ég er að spá í að safna mér mottu
palli says:
það er töff

palli says:
? ríða rauðhærðum svertingja sem er fyrrverandi karlmaður og með tilbúna píku eða hvítum dverg mongólíta sem líkist óneitanlega forseta Íslands???

Þetta voru bara nokkrir molar.
//
Þegar kvölda tók í dag skellti ég mér í sund. Það var fínt. Svo bjargaði ég systur minni frá einhverjum óttalegum unglingum og horfði svo aðeins á sjónvarpið. Sá ekkert sem mér líkaði mjög nema Frasier. Síðan hófst einhver ömurlegur spennuþáttur sem heitir Largo. Ég stakk hann af og fékk mér léttmjólk og Oreo, sem væri þjóðarréttur í ríkinu mínu, ef ég ákvæði að stofna ríki.
//
Í gær lenti ég í hægri/vinstri umræðum við Friðbjörn Orra. Ég lagði saklaust upp og spurði hvort hann hefði gaman af tónlist. Hann sagði já og við komumst að því að allir tónlistarmenn eru miðjumenn eða vinstrimenn. Ég sagði það stafa af því að hægrimenn gerðu ekkert fyrir listamenn. Hann sagði að hægrikerfi verðlaunuðu þá hæfileikaríkustu. Ég spurði hvort Backstreet Boys og Britney Spears væru hæfilekaríkust. Hann sagði nei, en að liðið í kringum því væri það hæfileikaríkasta (próduserar, engineerar o.s.frv.). Hann bætti einnig við að Bítlarnir hefðu verið 'In it for the money'. Ég var ósammála, og spurði hvers vegna George Harrisson hefði þá gert einhverja skítalélega syntaplötu sem seldist í tugum eintaka. Hann sagðist ekki vita það. Svo sagði hann að almenningur ætti að fá að dæma hvað væri góð tónlist og hvað væri slæm tónlist. Þess vegna væru BB og BS á toppnum, þau væru einfaldlega það sem fólk vildi. Þá sagði ég honum:
Anal Atli says:
Það sem fólk vill? Heldurðu að einhver hafi viljað BB þegar þeir komu fram? Nei, jarðvegurinn fyrir þá og mörg önnur söluhá/hæfileikalítil bönd var undirbúinn á níunda áratugnum, og náði síðan að blómstra með MTV og Spice Girls
Anal Atli says:
fólk þekkir einfaldlega ekkert annað, og þessvegna þarf einhver að beina fólkinu á rétta braut, þar sem list er list en ekki iðnaður
Anal Atli says:
það er hlutverk ríkisstyrkja
Anal Atli says:
og þá fyrst getur fólk fengið að dæma, því þá hefur það viðmiðun

Hann svaraði þessu aldrei. Annaðhvort hefur mér tekist að sannfæra hann, eða hann hefur dottið út eða e-ð.
Hvað finnst lesendum RVK-KBH DIREKT um þetta?

onsdag, juli 3

Ég barasta steingleymdi að rapportera um síðastliðna helgi. Hún var nokkuð týpísk held ég. Ég gerði voðalega lítið á föstudaginn. Er reyndar búinn að blogga um það hérna aðeins neðar. Laugardagur var aðaldagur helgarinnar. Að deginum ætlaði ég í Office1Superstore (ömurlegt nafn) að kaupa diska með Leó, en það er víst bara lokað á laugardögum í sumar, svo við færðum okkur í BT og gátum mixað þetta þar. Svo náðum við í fullt af klaka í 11/11 því að það var garðveisla heima hjá mér um kvöldið. Á hverju sumri (oftast fyrsta laugardaginn í júlí) boðum við í garðinn vini og vinkonur pabba úr MH, og þeirra fjölskyldur. Þetta held ég að hafi nú verið gert 10 sinnum. Þá kemur fólkið um 18, fær sér bjór, svo eru allir kallaðir í krakkaleiki: Hlaupa í skarðið, Fram fram fylking og eitthvað svona. Að því loknu er grillað. Svo er spjall fram eftir kvöldi. Í þessum veislum hef ég kynnst nokkrum krökkum á mínum aldri, sem ég hef svo gjarnað endurnýjað kynnin við á síðari árum. Einhverra hluta vegna eru þetta allt saman stelpur. Ég var semsagt eitthvað að mixa þessu veilsu um daginn, en svona upp úr 15 kom líka þessi glampandi sól og ég náttúrulega beint út og úr fötunum og baðaði mig í sólinni til svona 17:30. Þá var komið að veislunni. Hún var svosem ágæt, reyndar alltaf dáldið skrýtið að þurfa að vera með einhverju fólki sem maður myndi kannski endilega ekkert vera með sjálfviljugur, ekki það að stelpurnar séu eitthvað leiðinlegar, þvert á móti. Um tíuleytið fór ein þeirra heim. Önnur um miðnætti, og sú þriðja keyrði foreldrana heim hálftíma seinna. Ég ætlaði að draga hana með mér í partíið hjá tvíburum sem ég flúði þá í, en hún sveik mig, sagðist ætla að hringja. Það var bara hennar missir. Allavega, partíið hjá tvíburum var mjög fínt, rífandi stemmning bara. Ekkert fjölmennt, bara nokk passlegt. Loðnurassafélagið var með sinn fyrsta raunverulega fund, og þar kom bersýnilega í ljós að Nonni er formaður. Ég og Kári í harðri baráttu um varaformanninn. En fundurinn leystist upp í rugl þegar fram fór gervi-nauðgun á Sóleyju. Hún var ekki sátt. Hún var líka mjög full og ældi og var mjög þunn daginn eftir. Þannig var það. Í partíinu var m.a. einhver gaur sem bara lá í Lazy-Boy sófa með lokuð augun og næpuhvíta húð. Hann nefndum við vampíruna. Hann hefur sennilega þurft að drífa sig heim fyrir dögun. Líka algjört ógeð sem kallaðist Doddi. Hinir annars góðu menn Sverrir rauðhærði og Andri Núma drógu hann með sér. Þar með missa þeir heila stjörnu. Verður bara að hafa það. Ég var einna seinastur út, næstseinastur held ég, og var kominn heim rúmlega 4.
//
Ég vaknaði kl. 10:40 á sunnudeginum við tóna Godspeed you black emperor! því ég hafði lofað að mæta heim til Davíðs þar sem nokkrir gaurar ætluðu að horfa á úrslitaleik HM. Ég var fljótur að hætta við þegar ég heyrði vindhviður og regnhljóð úti fyrir. Hugsaði samt með mér að ég skyldi mæta í seinni hálfleik. Það brást. Steig fram úr eftir 13, spurði Brynhildi hvernig leikurinn hefði farið, fékk svar, og örfáum mínútum seinna voru Palli og Kári mættir með laptoppinn hans Kára. Davíð og Leó voru væntanlegir og plan dagsins að spila Unreal Tournament í kjallaranum hjá mér með fimm tölvur. Það gekk eftir. Ég gerði ekkert annað á sunnudeginum, nema um kvöldið, þar sem ég og Leó útbjuggum Undralandið fyrir sölu, og fórum svo heim til tvíbba þar sem horft var á upptöku úr partíinu kvöldið áður. Við fengum okkur bjór með því og Sóleyju varð víst óglatt af því að sjá hann og finna lyktina. Aumingja hún. Svo fór ég að sofa.
//
Daginn eftir var upplaginu (30) komið í búðir. Ég fékk mér Subway á meðan ég var í bænum. Langaði einhvernveginn ekki í Nonna. Við fórum svo í dag í viðtal hjá Fókus sem birtist á föstudaginn, og vonandi förum við í Moggann í vikunni.

mandag, juli 1

Ég held ég sé draumóramaður með fæturna á jörðunni. Ég hef haldið í næstum allan dag að það sé föstudagur, samt er geysilangt í hann. En ég hélt ekki að það væri föstudagur vegna þess að ég sá fram á svo góðar stundir, heldur vegna þess að ég vissi að ég væri að fara að vinna á morgun. Skrýtið. Skrítið. Maður má skrifa skrýtið bæði með yfsiloni og ii. Líka orðið peysa. Peisa. Þetta lærði ég í Gettu betur fyrir einhverjum árum. Hef samt aldrei séð peysa með ii.
//
Dagurinn leið einsog síðastliðna hálfa ár; þ.e.a.s. mjög fljótt. Nóg að gera og áður en varði var ég bara búinn að keyra sjálfan mig heim. Vel á minnst: Í morgun keyrði ég Poloinn í fyrsta skipti almennilega. Það varð smá fokk á hringtorginu á Hringbraut. Ég drap semsagt á honum sennilega í öðrum gír, þetta var eitthvað fáránlegt, og ætlaði af stað aftur bara í fyrsta einsog venjan er, en bíllinn dó alltaf strax og ég bara sjitt, reyndi aftur og aftur, en ekkert gekk. Pabbi sagði að ég gæfi ekki nóg inn. Svo ég tók hann bara upp í 7000 snúninga og þá rann hann af stað. Seinna um daginn rann upp fyrir mér að ég hafði startað honum í þriðja. Heimferðin gekk mjúklega.
//
Var að lesa bloggið hans Leós. Djöfull er hann fokkt. Textinn næsta óskiljanlegur, þó ég skilji hann. Nóbelsverðlaunin láta eitthvað á sér standa. Virðist halda að við höfum ekkert komið nálægt kynningu á Undralandinu í Púlsinum á Radio-X. Það eru bara fleipur. Ég sendi þeim tölvupóst. Hitt hefði auðvitað verið meira kúl, en ekki satt. Annars kom diskurinn út í dag. Ég dreifði honum. Vona að hann seljist upp, það væri mjög gleðilegt.
//
Hér er athugasemd til lesenda þessarar síðu:
Í undanförnum bloggum hef ég margoft varpað fram einhverri spurningu. Jafnvel nokkrum. Engri þeirra hefur verið svarað. Það er ég ekki nógu ánægður með.
//
Fólk sem segir ég vill á skilið að deyja. Nei, fyrirgefið, þetta var fullhart. Það á samt að setja lög um það að í hvert skipti sem heyrist ég vill, verði mælandinn sektaður um 5000,- kr. Ef hann lætur það frá sér í texta eru það 10000,- kr. Það væri málvernd í lagi. Sama ætti að eiga við um þágufallssýki í fyrstu persónu. Önnur persóna er vægari, og þriðja enn vægari. Þ.e.a.s. ég get ekki sætt mig við mér langar en einhverjum langar er ekki jafn alvarlegt. Þetta ætti kannski að vera einhverskonar punktakerfi, einsog í umferðinni.