lørdag, juni 29

Á síðastliðnum hálfa mánuði, hef ég fengið tvö afar dularfull SMS. Annað barst mér frá Grétari, fyrrverandi forseta NFMH; og hitt frá Sigga T, en sá maður er mest fokkt allra manna. Hér verða skilaboðin bæði höfð eftir, fyrst þetta frá Grétari og síðan frá Sigga T, sem ég fékk í dag.
***
Grétar (15:39, 16. júní):
JÆJA hvad segirdu skítbuxi?
***
Siggi T (17:16, 28. júní)
Ég for i bio i gær og runkadi mer og hugsadi bara um thig, thessi fallegu augu
***
Ef einhver þarna úti getur ráðið í annað eða bæði þessara skilaboða, er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við mig. Ég svaraði skilaboðum Grétars en ekki Sigga.
//
Annars gerði ég lítið í kvöld, hlustaði á fullklárað Undraland og horfði á Full Metal Jacket eftir Stanley Kubrick. Það er mikil synd að Kubrick sé dáinn, hann hefði getað pumpað út fleiri meistaraverkum. Voðalega hefur hann samt gert fáar myndir miðað við hvað ferillinn var langur. Ég held ég hafi talið 7 myndir á ca. 35 árum. Ein mynd á 5 ára fresti; kannski lógískt. Líka synd að John Lennon hafi verið myrtur, mig grunar að hann gæti enn þann dag í dag verið að búa til tónlist sem hljómar ný, og er góð, annað en seinni tíma tónlist Ringo Starrs og McCartneys. Ég veit ekki með Harrisson, dettur ekkert nýrra í hug en All Things Must Pass. Ef ég miða samt við 25 ára afmælisútgáfu af My Sweet Lord hefur hann farið útaf sporinu, en það lag er að ég held það seinasta sem hann lét frá sér. Ekki nógu góð lokaorð á annars glæstum ferli. Lennon væri ennþá kúl.

fredag, juni 28

Ég og Svala eigum hvorki meira né minna en hálfs árs afmæli í dag. Óskið okkur til hamingju með það.
//
Ég eyddi þessum góða afmælisdegi í að hengja upp tæplega 80 plaggöt í miðbæ Reykjavíkur. Það tók ógeðslega langan tíma. En það gekk ágætlega, ég held fólk muni sjá þau um helgina og í næstu viku. Í miðju kafi stökk ég inn á staðinn The Deli sem er neðarlega á Laugavegi. Þar hengdi ég upp eitt A4 plaggat og ákvað svo bara að fá mér að borða, því það hafði ég aldrei gert áður og líka vegna þess að maðurinn í afgreiðslunni var svo vingjarnlegur. Það var reyndar greinilega mjög mikið buíð hjá þeim ídag og aðeins ein eða tvær samlokutegundir eftir, en mér leist nógu vel á kalkún og kóríander og sló til. Ein svoleiðis samloka kostaði fokking 510 krónur. Af einhverjum ókunnum ástæðum hugsaði ég mig bara örstutt um og sagði svo bara ókei og rétti honum kortið. Samlokan var ekki þess virði og endaði í ruslinu hálfkláruð. Hvað varð til þess að ég samþykkti þetta verð mun mér sennilega aldrei verða ljóst, en mér fannst þetta svo merkilegt að ég varð bara að deila þessu með ykkur.
//
Klukkan 17 datt ég svo inn í 12 tóna þar sem einher Kippi Kanínus var að fagna útgáfu plötunnar sinnar Huggun. Semsagt rósavín og raftónlist. Mér finnst þessi tvö orðmeiraðsegja svo töff saman, að ég er að pæla í að nefna einhverja plötu þessu nafni: Rósavín og raftónlist. Það er bara orðið svo að maður getur varla hreyft sig fyrir léttvíni sem er gaukað að manni á hinum ýmsustu stöðum. Fékk mér nú samt bara eitt, reyndar mjög gott, glas af California Rossi rósavíni, og lét það nægja áður en ég hélt aftur út að hengja upp. Svo var ég sóttur af fyrrverandi yfirmanni mínum, en nú hef ég tekið við stöðu hans. Sá heitir Aðalsteinn, kallaður Alli porter. Ég fór með honum að sækja einhvern bjór, keyra kærustuna hans heim og svo skutlaði hann mér heim, þar sem ég lánaði honum þýska fánann. Hann er nefnilega að vinna á bar. Hann var rekinn af Hótel Sögu, eftir margra ára starfsferil. Enginn er öruggur. Veit ekki hvað ég geri í kvöld, kemur í ljós. Góða ferð til Brynju Ragnarsdóttur, kærustunnar hans Palla homma, sem er að fara til Ítalíu á morgun.

Nú held ég að sé kominn tími á almennilegt blogg. Jafnvel ástæða til. Ég er nýkominn heim af sumarskralli Sommelier, þar sem fleiri en einu hvítvínsglasi var stútað. Ótrúlegt hvað áfengi virðist hafa góð áhrif á sköpunargáfuna. Þess vegna hljóta öll skáld að vera/hafa verið fyllibyttur. Sem og leikarar og tónlistarmenn. Allavega, þetta var mjög steikt; ég lét Leó hafa seinasta lagið á plötuna og stakka svo af í þetta skrall sem var ekkert svo mikið skrall eftir allt saman. Jújú það var ókeypis vín, og ostar, og hrossakjöt (!) og smokkfiskur og eitthvað, en ekkert virkilega gott. Hvítvínið samt alveg að rokka. Enginn af Hótel Sögu nema tvær stelpur úr móttökunni. Reyndar heppilegt að það skyldu vera þessar tvær, alveg á topplista móttökunnar. Önnur meiraðsegja bara '82. Allavega við vorum bara hress saman í þessu og svo fékk ég skutl heim. Þar tók dáldil fyndni við, þar sem mamma er nýkomin heim úr einhverju boði. Með henni er önnur kona sem mér er vel kunn, en nafn hennar verður ekki nefnt hér. Ég hef ekki séð þessu tilteknu konu um nokkurt skeið en ég ætla að hafa hér eftir okkar örstutta samtal:

X: „Nei...er þetta Atli eða Sverrir?“
A: „Atli.“
X: Nei...djöf...heyrðu Atli, ég sá þig í sjónvarpinu um daginn...“
A: „Nú?“
X: „Já...nei...ég ætla ekki að segja þér hvað þú stóðst þig vel, því ég þoli ekkert minna en unglinga sem ofmetnast. hahahahaha...“
A: „Jæja...“
X: „Já...þú hefðir nú mátt gera betur...“

Þetta fannst mér dáldið fyndið. Þið dæmið náttla sjálf um það, en munið að taka með í reikninginn lampalýsta stofu og tvær drukknar konur.
//
Á meðan þetta er ritað, er ég kominn í frekar leiðinlegar samræður á MSN við Orra frjálshyggjufrík, og einsog venjulega eru þær af pólitískum toga. Þras. Nenni varla að standa í því núna. Mér að kenna samt, ætlaði að rústa honum með því að höfða til tilfinninga hans. Það gekk ekki. Hann er búinn að lesa alltof fokking mikið.
//
Ég ræddi það við einn vinnufélaga minn í dag, að ég þjáðist af bloggstíflu. Hann sagði mér að skrifa um flugvöllinn. Mér leist heví vel á það, en ekki lengur. Þess vegna ætla ég að geyma það.
//
Undralandið vonandi tilbúið. Leó ætlaði að skrifa prótótýpu í kvöld. Ég fer á morgun að hengja upp plaggöt. Gæjarnir sem stjórna veðrinu eru fávitar. Skella einum tveimur beztu dögum sumarsins á vinnu hjá mér og möndla svo rigningu á fríið mitt.
//
Ég keypti mér vínylplötu á þriðjudaginn, það ætti nú að kæta kærustuna mína, sem gaf mér svo ótrúlega fínan plötuspilara í afmælisgjöf. Platan sem um ræðir nefnist Trees and Limbo og er með tónlistarmanninum Borko, sem er Íslendingur, og einmitt einn af liðsmönnum sveitarinnar Rúnk, sem ég fylgdist með um daginn. Borko þennan sá ég hinsvegar á útgáfutónleikum múm þegar þau gáfu út fyrri plötu sína. Þeir tónleikar voru viku eftir útgáfuna, eða 30. desember 1999. Þar kom ég nú fram ásamt restinni af bjöllukór Bústaðakirkju (sem nota bene fær þakkir í umslagi nýju plötunnar þeirra...) við flutning lagsins The Clocwork Rattle Strange sem hefur að held ég ekki heyrst aftur, að undanskildum flutningi á tónleikum sem þau héldu fyrir fjölskydlu og vini. Allavega, ég á eftir að hlusta á Borko, en hann lofar góðu, dáldill Morr Music bragur á þessu hjá honum, samt betra, því stundum verður þessi Morr músík eitthvað svo svipuð...svona drama/experimental formúla, dáldið skrýtið. Langar samt í ISAN plötuna. Held hún sé geðveik. Mig langar líka í Prefuse 73 plötuna, því ég hlustaði á han í 12 tónum einmitt þegar ég pikkaði upp Borko. Hlustaði líka á íslensku rappsafnplötuna Rímnamín. Veit ekki hvað ég á að halda, virkaði góð, en ekkert betri en hip-hop getur orðið, skiljiði? Kannski hef ég bara ekki heyrt nógu gott hip-hop, en þegar ég heyri eitthvað svona geðveikt instrúmental, þá finnst mér rappið alltaf skemma. Og fyrst ég er farinn að rausa um þetta langar mig að koma því á framfæri á Bæjarins Beztu eru nú meiri kallarnir. Heimta að ég skrifi pistil á síðuna þeirra, en birta hann svo ekki mánuði eftir að hann er skrifaður. Annars virtust þeir einmitt eiga ágætis lag á þessari plötu. Við skulum segja að ég myndi aldrei kaupa mér Rímnamín á meira en 700 kall, en ég myndi halda henni sem gjöf. Koverið var samt mjög flott, eiginlega nákvæmlega og mig hefur alltaf langað til að gera; einhver ákveðinn hlutur (í mínum huga oftast orgel, þarna Rímnamín miðinn) í allskonar svona „urban“ umhverfi í Reykjavík. Þoli ekki þegar hugmyndunum mínum er stolið. Þegar Leó var lítill datt honum í hug að búa til svona gaffal með hníf á hliðinni, en svo sá hann svoleiðis einhverntímann á einhverjum flugvelli held ég. Hann varð nokkuð sár, hélt hann væri snilli, en svo var hann bara kúkur.
//
Ekki gleyma að tékka á hugi.is/raftonlist.
Takk fyrir.

onsdag, juni 26

Jæja, fyrirgefið kæru lesendur, ég ætlaði ekki að vera svona skapillur í morgun en þannig fór það nú bara samt. Fermingarbindið og nafnspjaldið er komið í leitirnar þökk sé Alecandro Pikalandro, og kvöldið fram undan. Ég hlakka til þess að taka upp það sem vantar á undralandið og líka til þess að fara á Sumarskrall Sommelier! annað kvöld. Þar verður "boðið upp á eðalvín í kjörumhverfi...". Namm, og ég í fríi daginn eftir. Nýti það til að hengja upp plaggöt.
//
Ég ætlaði að gerast meðlimur í Netklúbbi Flugleiða, en fékk ekki sent neitt lykilorð. Reyni að mixa það. Í dag hafa rólegheit einkennt líf mitt. Þó að engir pikkalóar hafi verið á vakt, var samt lítið að gera. Skrýtið. Meika samt ekki að skrifa í vinnunni, kannski ég bloggi loksins eitthvað almennilegt í kvöld, svona fyrir svefninn.

*

Já, og lyktin í kjallaranum á þessu helvítis hóteli er einsog á Þorláksmessu, nema hérna er ekki kæst skata í matinn...nei; hérna er það kæstur maður.

Þetta eru djöfulsins fávitar! Ég mæti hérna í vinnuna að morgni og dags, einungis til þess að uppgötva að bindinu mínu og nafnspjaldi hefur verið stolið! Hvaða fífli dettur í hug að fara inn í annarra manna skáp, sem ekkert er í nema svart bindi og Radisson SAS nafnspjald og tæma hann!? Kúkar. Ég fermdist með þetta fokking bindi! (Ekki það að ég bindist flíkum neinum sérstökum tilfinningaböndum, en samt...)
Og ekki nóg með það, þá virðist sólin einhverra hluta vegna bara velja sér þá daga sem ég er að vinna, til þess að skína. Og hér verð ég að húka til kl. 20 í kvöld, í steikjandi hita, með glæsilega gula sólina hlæjandi fyrir utan gluggann.
Fokk off.

tirsdag, juni 25

Jæja, þá er allt komið. Við erum að leggja lokahönd á kóverið. Samningaviðræður við Hljómalind, 12 tóna og Þrumuna eru yfirstaðnar og bara eftir að taka upp tvö mjög einföld lög. Atli & Leó í Undralandi kemur út á mánudag og mun verða til sölu á 500 kall í ofantöldum búðum.
//
Búinn að sinna Undralandinu í allan dag eiginlega. Lítið að blogga um, aldrei þessu vant. Ekki einusinni neinar brjálaðar pælingar varðandi heiminn og marklausa tilveru okkar hér á jörðunni.

mandag, juni 24

Sjitt. Djöfull vorkenni ég þessum gæja. Hann segist ætla að skrifa aftur, en svo gerist bara ekkert og það er næstum því mánuður síðan textinn er skrifaður. Ætli hann hafi framið sjálfsmorð eða eitthvað?

Ég og Leó vorum að funda áðan varðandi prójektið okkar. Vinnutitill þess er 'Svona er sumarið 2002'. Ég kýs að kalla tónlistina sem er innan þess konsept-tónlist. Sko: tónlistin sem er að finna á þessum skífum er nýsamin tónlist eftir okkur Leó. Við ætlum að gefa út þrjá svona diska í sumar. Fyrsta júlí, fyrsta ágúst og fyrsta september. Tónlistin verður afar hrá, mikið óklárað efni, mikil tilraunastarfsemi, en um leið verður ekki lögð sérstök áherzla á frumleika, þar sem skemmtanagildi verður sett ofar í forgangsröðun. Diskarnir eru eiginlega hugsaðir sem hugmyndabanki fyrir okkur sem og aðra. Öll endurhljóðblöndun verður mjög vel þegin, og ef einhver þarna úti vill fá afrit af skjölunum sjálfum (þegar það á við), er það minnsta mál heims. Við ætlum reyna að fá að selja þá í búðum einsog Hljómalind, Þrumunni og 12 tónum. Upplagið verður svona milli 20 og 30 stk. Sá fyrsti kemur einsog áður sagði út á mánudaginn, og nefnist Undraland. Einsog stendur eru á honum fimmtán lög, en það gæti eitthvað bæst við í vikunni. Meðal þess sem mun þar heyrast er söngrödd mín. Spennandi. Hvet allavega alla til að kaupa diskinn (sennilega 500 kall) og öðlast innblástur.
//
Annars rólegur dagur. Ökutími + umsókn um æfingaakstur. Lítið annað.
//
Langaði að benda þeim sem eru alls ókunnugir um ferðir Svölu minnar í útlöndum, að hennar samferðafólk eru Signý og Bryndís.

Djöfull horfði ég á lélega mynd í gærkvöldi. Ég var orðinn heví spenntur því að treilerinn sem var búinn að vera á RÚV lofaði góðu. Ég hélt að myndin gerðist í nútímanum og fjallaði um einhvern gaur sem að sæji Saturday Night Fever og yrði heltekinn af myndini, + öllu sem tengist diskói; fötunum, tónlistinni, talandanum +.s.frv. En hún gerðist bara árið 1977, og gaurinn var nokkuð diskólegur, jafnvel áður en hann fór að sjá myndina, sem einhverra hluta vegna hét Forever Fever. (Einsog myndin sjálf hét jú). Myndin var singapúrsk (singapúrísk?) og það var nú reyndar dálítíð skemmtilegt að heyra fólkið tala, því að enska er opinbert tungumál Singapúr, og í meðförum Singapúr búa, varð hún frekar skrýtin. Það var líka skemmtilegt af því ég hafði bara verið að hugsa um þetta nokkrum dögum áður: Fyrst að enska er ríkistungumál í löndum einsog S-Afríku og Singapúr, hvernig hljómar hún þá þar. Varla talar fólkið með enskum eða amerískum hreim. Enska er semsagt miklu meira en bara enska/ameríska/ástralska. Allavega, ég er ekki viss um að án texta hefði ég skilið allt sem fram fór. Líka vegna þess að allir slettu kínversku. Það var líka skrýtið að samkvæmt myndinni vildu allir heita evrópskum nöfnum. Bróðir söguhetjunnar vildi láta kalla sig Leslie, en hét Bah Lee (að mig minnir). Systir hans vildi láta kalla sig Dominique, Francesca, Isabelle; en hét Mui. Svo var þarna parið Richard og Julie og þetta var bara fáránlegt. Mér sýndist hinsvegar, að þetta væri mál yfirstéttarinnar í Singapúr, að skilja við upprunann og breyta um nafn. Allavega var söguhetjan Hock andsnúin þessu, en greip þó til þess að kalla sig Tony til að heilla stúlku. En einsog sagði í upphafi var myndin ömurleg, lítið fyndin, fylgdi Hollywood-formúlu að miklu leyti, og ótrúverðug. Samt var gaman að sjá eitthvað annað heldur en hvítt ríkt fólk spranga um skjáinn einsog það ætti heiminn. Mig langar til Asíu.
//
Ég pissaði fjórum sinnum í vinnunni í gær. Venjulega pissa ég einusinni, tvisvar ef ég er í ruglinu. Ætli þetta merki eitthvað?

søndag, juni 23

Já, mér finnst kúl að skrifa + í staðinn fyrir og. Kannski ég taki það upp á þessari síðu hér.

Ætli að í framtíðinni, þá mæti fólk í vinnuna og vinni smá, og svo fari það í kaffi, og vinna smá, og í mat, og vinna smá, og í blogg-pásu, og vinna, og í kaffi, og í blogg-pásu, og vinna smá? Þ.e.a.s. t.d. (vá!) ef tóbaksneyzla líður blessunarlega undir lok, þá deyja væntanlega reykpásurnar út, og bloggið kemur í staðinn. Aldrei að vita. Ég er semsagt í vinnunni einsog svo oft áður. Er í kaffihléi en finnst kaffi vont, og kexið freistar mín ekkert sérstaklega. Svo mín kaffihlé eru blogg-hlé.
//
Höfuðið er tómt. Ég verð að fara skrifa niður hvað ég ætla að blogga um.
//
Ég hélt að skopparar væru því sem næst útdauðir, og ég væri einna virkastur í að halda lífi í stéttinni. En annað kemur í ljós, svo til allir undirmenn mínir, pikkalóarnir og vinir þeirra eru skopparar. Ég man þegar ég var í tólf ára bekk og Hallgrímur, gamall félagi minn, sem er núna stjarna í ofbeldisklúbbi Íslands, mætti í Southpole buxum sem voru alltof fokking stórar á hann. Síddin var svona einsog ef ökklinn væri annað hné og þar fyrir neðan tæki sköflungurinn og kálfurinn við, mjög steikt. Mér fannst hann nokkuð harður, bara einsog gaurarnir í áttunda. En áður en sumarið var á enda var ég kominn í Fubu buxur og hvíta Smash peysu. Til að gefa mynd af stærð buxnanna má geta að ég geng ennþá í þessum Fubu buxum, og neyðist til að nota belti. Ætli að það hefði mátt sjá framtíð Hallgríms fyrir á þessari stundu? Sennilega ekki, en framtíð hans sá ég strax í svona sjö ára bekk. Hann var alltaf með miklu eldri strákum, var alltaf að slást, átti hund, var dekraður, og var fyrstur til þess að sýna mér eigið klám. (Þ.e. ekki í eigu foreldra.) Mér fannst einhvernveginn bara líklegt að það yrði eitthvað rugl á honum. Ég sá þetta fyrir. En varðandi skoppara, þá finnst mér dáldið fyndið að flestir skopparar hafi bara verið að fíla Limp Bizkit og einhverjar jafnfokkingömurlegarskítahljómsveitir. Þeir skildu hip-hoppið eftir í USA.
//
Þó svo ég tali um að sjá hluti fyrir vil ég taka fram að ég trúi ekki að hægt sé að sjá framtíðina raunverulega. Maður getur spáð hinu og þessu, en það eru alltaf spár, alveg jafngildar spá næsta manns. Spákonur vita til dæmis ekki rass.
Jæja, kaffið búið. Spái því að ég hitti mann fyrir framan pappírsgeymsluna eftir smástund.

Fyrirgefið hvað er liðið langt síðan seinast, ég ætlaði að pósta eitthvað í dag, en það bara datt einhvernveginn upp fyrir. Annars er klukkan núna rúmlega 2 og ég er nýkominn heim. Ætlaði að skrifa Svölu langt og ítarlegt, persónulegt bréf og blogga svo dáldið, en komst ekki í það því að Kári, Leó og Orri höfðu samband og buðu mér með á tónleika í Vesturporti þar sem fram komu sveitirnar Sveittir gangaverðir og Rúnk. Sveittir eru víst rosalega vinsælir hjá krökkum í gaggó, og strákum í Verzló og stelpum í MS. Þeir spila kærulaust danspopp, með hversdagslegum textum. Ég held ég geti fullyrt að þeirra sveit eigi ekki að taka mjög alvarlega, og það vita þeir fullvel sjálfir. Þetta er bara grín. Aftur á móti láta Rúnk einsog þeirra sveit sé heilmikið grín, en þarna er þó á ferðinni band sem er starfandi einungis vegna þess að fólkið vill rokka og róla. Ég vissi ekki alveg hverju ég átti von á frá Rúnk, aldrei heyrt í þeim áður, að undanskildu jólalagi sem ég heyrði í plötubúðinni Hljómalind síðastliðin jól. Það var mjög fallegt og hugljúft, en tónlistin sem hérna var á ferðinni var ofurkeyrt rokk og ról. Hrátt og ferskt. Sómar sér vel í þessari nýpönk/avant-rokk bylgju sem er í gangi. Gítarleikari sveitarinnar, Benni, sem er félagi bróður míns, var ölvaður fram úr öllu hófi, en kryddaði framkomu sveitarinnar án efa, þó svo hún hafi samt verið mjög fjörleg. Ég fílaði bandið vel, þarf að ná mér í Jólin eru...Rúnk. Mig hefur alltaf vantað jólaplötu.
Sveittir voru fyndnir, og fólk var að fíla þá mjög vel. Ég hafði aldrey heyrt lagið „Hustlah Type of Guy“ áður, en húsbítið sem Gummi Lati próduseraði fyrir það lag er killer. Og lagið fyndið. Næstseinasta en jafnframt bezta lag þeirra, áður en húsið trylltist þegar „Boogie boogie“ fór í gang.
Þess má geta að fyrir þessa tónleika lék plötusnúðurinn Phil Stadium lög úr safni sínu og voru sum þeirra nokkuð mögnuð. Ég er að pæla í að ná mér í Futureworld með TransAm eftir kvöldið.
//
Eftir tónleikana var haldið í partí heima hjá Rósu vinkonu minni. Hún var svo heppin að fá starf sem barþjónn á barnum Kaffi Reykjavík úti á Benidorm (nei þetta er ekki grín), og mun hún flytjast búferlum fram til 4. september frá og með næsta miðvikudegi. Bless Rósa. Partíið var steikt, sundurleitur hópur fólks, almennt lítil stemmning fyrir djammi og greinilega farið að fækka, svo ég stoppaði ekki lengi; skellti mér á beikonbát og svo heim.
//
Annars var dagurinn venjulegur. Ekkert að gera í vinnunni. 1700 kall í tipps. Fékk póst frá Svölu (jibbí!). Ég kláraði að hugsa um miðann sem mér var boðinn á Hróarskeldu og komst að þeirri niðurstöðu að þótt mig langaði auðvitað, væri það ekki skynsamlegt því a) Lænöppið í ár er ekkert svakalegt, Chemical Brothers standa sennilega upp úr. b) Ég eignast engan pening fyrr en um mánaðamót. c) Svala ætlar ekki að fara. d) Miðinn var dýrari heldur en ég hefði sjálfur keypt hann. Svo ég ákvað bara að skella mér til Køben seinna í sumar, eða jafnvel til Lundúna...
//
Ég held að þegar fullt af litlum strákum eru litlir, langi þá til að verða rokkstjörnur. Mig langaði aldrei til að verða rokkstjarna, í mesta lagi leikari, eða leikjaforritari. En síðan í vor er ég búinn að vera að drepast mig langar svo til að verða rokkstjarna og taka bara gjörsamlega rokk-pakkann: Kókaín, Viskí, Grúppíur, missa af tónleikum, rútur, gítarar og allt heila klabbið. Er meiraðsegja að spá í að læra á gítar, bara svo ég geti orðið stjarna. Þarf væntanlega líka að skipta um týpu af músík sem ég sem. Ekki það að ég semji nokkurntímann lög lengur. Hef ekkert samið af viti einn míns liðs síðan í níunda bekk. Hversu ömurlegt er það? Ég er samt að pæla í einni sunginni píanóballöðu. Nokkrir hljómar komnir + textabrot. („Ég er kannski ekki villtur/en ég þarf samt hjálp við að rata“, rosa drama...) Meira varðandi tónslitaráhuga minn; ég virðist vera kominn í einhvern vítahring. Sko: ég er svo upptekinn af þeirri staðreynd að ég þurfi að komast yfir að hlusta á sem mest á minni stuttu ævi, að ég eyði meira tíma í að hlusta á hljóðbúta, sækja tónlist á Netið, lesa um tónlist, hafa uppi á nýjum nöfnum; að ég eyði eiginlega engum tíma í að hlusta á tónlist. Tilgangurinn er farinn að helga meðalið. (Ég hef ekki hugmynd um merkingu þessa orðtaks, en endilega bendið mér á hvort notkun í þessu samhengi gengur upp) Ég hef fundið fyrir þessu, því ég kaupi mér reglulega nýja diska, reyndar mest á sumrin, og svo sitja nokkrir þeirra bara óhreyfðir í hirslunum sínum. T.a.m. Anti EP með Autechre, sem ég keypti fyrir svona tveim vikum en er aldrei buínn að hlusta á, þó hún sé bara tæpur hálftími. Þetta er nú meira bullið. Vona samt að þessu tímabili fari að slútta og ég fari aftur að njóta tónlistarinnar sem bezt ég get.
//
Ég gæti spjallað meir, en það er vinna eftir 5 og hálfan, og kannski nennir enginn að lesa þetta hvortsemer... Lesumst á morgun.

lørdag, juni 22

Nýkominn heim úr partíi hjá Ölmu Joensen. Reyndar búinn að svara pósti frá Svölu, en hér er samt blog; og skýrzla partísins. En fyrst: Óskar náttúruverndarsinni er fluttur inn með kærustunni sinni. Djöfull er það skrýtið. Tvítugur og fluttur að heiman. Ég sé það engan veginn fyrir mér. Spara og elska. Erfitt dót hlýtur að vera. + að vera sveittur gangavörður. Fokk.
//
Partíið var nokkurnveginn einsog við var að búast, kannski ekki jafnvillt samt. Við Kári blönduðum okkur bara Cuba Libre (Þú finnur Nortón fullan á næsta pöbb, með glasið fullt af Havana Club) og stungum okkur í spjall við meistara á borð við Snorra og Kalla og Bøsse og Högna og svona. Ég og Snorri ræddum X-KEX heilmikið. Erum að pæla í að fá Coxon til að spila í NKJ. Hvernig líst liðinu á það. Ég borðaði mikinn ost og mikið grænmeti sem maður dýfir í svona góða dýfu. Spjallaði líka aðeins við bróður Ölmu, sem er nátengdur hinni mögnuðu íslensku hardkor senu. Lýsti því yfir að ég meikaði ekki hardkor tónlist. Einn meðlimur sveitarinnar I Adapt var staddur þarna um leið. Kannski hann berji mig? Nortón var spiluð. Djöfull er hún fokking góð. Ekki hardkor, en samt ekkert softkor, skilurðu? Ég er að melta þennan miða. Veltu dáldið á svörum frá Svölu sem ég óttast að berist fullseint. Kemur í ljós. Á samt engan pening fyrr en um mánaðamót. Eftir partíið skutlaði Rósa okkur til tvíbura, og þar sá ég vídeóið loksins sem var tekið af mér og Leó og Nonna fullum. Djöfull vorum við flippaðir. Mikið klám/dónatal á okkur. Gudda búin að klippa á sig stuttbuxur Kylie-style. Sexí. Er eitthvað sexí við það að vera á túr? Stelpur, segið okkur. Hlakka ekki til að mæta á morgun í vinnu. Þarf að sinna brýnni erindum, en ég redda þessu. El Gucci de fantano, di montagna buero libre. Ég er virkilega farinn að sakna Svölu. Anna danska lamdi mig í hausinn. Ég átti það skilið, var dónalegur við hana. Godnat.

fredag, juni 21

Ég er í vinnunni núna og leiðist. Það er að birta til og ég er að pæla í að fá að fara heim kl. 18 í partíið sem er að hefjast þar. Ekki það að mér sé boðið, né heldur að ég vilji taka þátt. Gamlir vinnufélagar pabba hljóma ekki nógu heillandi. Þá get ég slappað aðeins af, fengið mér að borða og farið svo í partíið sem mér var boðið í áðan. Alma Joensen (Ms. Hot'n'Sweet) gamall félagi bauð nefnilega í afmæli í kvöld. Spennandi. Þegar ég kem svo heim í nótt er ég að pæla í að blogga. Það verður söguleg stund: fyrsta bloggið sem ég mun rita undir áhrifum Cuba Libre.
//
Kári er byrjaður að blogga. Ég sagði honum að gera það "því það er svo sniðugt að halda úti svona síðu handa kærustunni sinni í útlöndum...". Hann tók þetta full alvarlega og neitar að gefa upp slóðina. Er greinilega ekki jafn léttur og skemmtilegur og ég.
//
Þegar ég var yngri uppgötvaði ég að maður gat stimplað brot inn á reiknivélar án þess að ýta á núll fyrst. Ég byrjaði að gera það líka þegar ég reiknaði, svo 0,25 varð bara ,25. Stefanía, sem kenndi hinum hópnum og er nýbúin að útskrifa systur mína, bað mig um að hætta því. Ég hætti. Skýrsla úr partíinu í nótt, seinasta lagi á morgun.

torsdag, juni 20

Hæ hó og jibbíjei! Ég er orðinn frægur! Allavega minnist frjálshyggjufríkið Friðbjörn Orri Ketilsson á mig í annað skiptið á heimasíðu sinni. Annars er síðan hans mesta öfgahægrikjaftæði sem ég hef kynnst.
Ég kláraði tvö hip-hop instrúmentöl í dag. Þau fara ábyggilega bæði á hip-hop plötuna sem ég og Leó og Bjartur og Goggi ætlum að gera í sumar. Er einhver með hugmyndir um hvað við eigum að kalla bandið. Ég er hingað til bara kominn með tvær lélegar hugmyndir: S.R. (Sláturfélag Reykjavíkur) og FUCK U2. Sendið okkur nafnapælingar.
Ég er að vinna um helgina svo það verður eitthvað lítið djamm. Fer í háttinn núna. (Athugið að klukkan er vitlaus, er klukkutíma seinni á ferðinni en raunveruleikinn. Þ.e.nú er klukkan að verða ellefu, ekki tíu.)

Ég á bara eftir einn ökutíma þangað til ég fæ æfingaakstur. Djöfull er ég góður. Ég held að White Stripes sé barasta góð hljómsveit. Ekki jafn góð og Strokes en góð samt. Ég er farinn að hafa gaman af allri tónlist. Skrýtið, því ég var talsvert þröngsýnn fyrir nokkrum árum. En hinir ýmsustu hafa opnað eyru mín. Ég og Svala menntum hvort annað. Eða er ég kannski bara veikur fyrir fjölmiðlahæpi? Ætti ég að fara á Travis tónleikana? Mun mér endast ævin til að heyra alla tónlist sem mig langar til að heyra? Sennilega ekki. Halldór Laxness hafði áhyggjur af því að honum myndi ekki endast ævin til að lesa allar bækur sem hann langaði að lesa. Hvernig ætli það hafi farið? Kannski barnabarnið viti það... Laxness vann Nóbelsverðlaun fyrir bókmenntir. Ég spái því að þegar Leó verður búinn að ná valdi á Blogg-forminu, verði hann fyrsti maðurinn til að fá Nóbelsverðlaun fyrir Blogg. Gæti allavega vel verið.
Veðrið er ekkert mjög gott, það var hlýrra í gær. Mér leiðist dálítið. Vala vill vita hvenær þessi síða verður opinber. Er ekki allt Netið opinbert? Ég veit samt hvað hún meinar, hvenær textinn verður miðaður að almenningi. Mér sýnist á þessu pósti að raunin sé orðin sú. Opinberunin fer fram núna. Gleðilegan dag.

Kemur bara í ljós að bróðir minn er með Blogspot líka: Sjálfmiðlun. Gengur víst eitthvað illa hjá honum.

Er að pæla í að gera þessa síðu almenningsvænni. Miða hana minna að Svölu og meira að öllum. Hvernig líst þér á það, ástin mín?
Vinum mínum finnst Kári hljóma alveg einsog Graham Coxon. Eða kannski hljómar Coxon alveg einsog Kári. Vala hélt meiraðsegja að Kári væri að syngja og Leó eða einhver að spila undir. Leó fannst músíkin allavega geysilega falleg. A Place for Grief fór alveg með hann bara. Annars heitir platan Crow Sit on Blood Tree og þið getið fræðst um hana hérna. Mér finnst hún góð, líka pönkið.

onsdag, juni 19

Namminamm...fríi í dag. Vaknaði seint, en var búinn að sofa illa um morguninn útaf einhverjum djöfulsins krakka sem systir mín er að passa og vældi og vældi og vældi. Kíkti svo í ökutíma, er að verða frekar góður, og svo heim. Heyrði í Leó, stökk til hans og við spiluðum Marathon: Resurresction, sem er rosalegur; endurgerð af hinum upprunalega Marathon eitt, nema betrumbættur í Unreal Tournament...allavega, nokkuð magnað. Svo var matur, grillað ket og litlir frændur í heimsókn. Veðrátta er nokkuð hlý, en ekki sést til sólar.
Í gærkvöldi löbbuðum ég og Sverrir og Brynhildur útá vídeóleigu saman í fyrsta skipti og snérum aftur með Billy Elliot í farteskinu. Ágætis mynd en prómoteruð á gjörsamlega kolrangan hátt; sem „bráðskemmtileg bresk gamanmynd“. Jújú hún er bráðskemmtileg og bresk, en engan veginn gamanmynd að mínu mati. Hádramatísk, og ég hló upphátt einusinni, mest tvisvar. Allavega, *** af fjórum mögulegum. Veit ekki með kvöldið, horfi kannski á vídeó sem var tekið 16. júní af mér og Leó og Nonna fullum. Fyndið.

tirsdag, juni 18

Jæja. Velkomin til København og velkomin á Sumarblogger Atla! Hér mun mest allt sem fer fram í Reykjavík vera ritað, svona til að þú missir ekki algjör tengsl við það sem skiptir máli. Og hefjast þá skrifin:
17. júní hélt ég mig í vinnunni þangað til ég var búinn. Það var enginn í góðri stemmningu enda djöfulsins skítaveður. Svo ég tók bara strætó heim í autt og kuldalegt húsið. Fékk mér sæti við tölvuskjáinn og hóf Netvafur, meðan ég sótti tónlist sveitarinnar White Stripes. Horfði svo á Björk á tónleikum á RÚV og skellti því næst einum góðum í vídeótækið. Stakk svo af til Leós og systir hans skutlaði okkur niður í bæ. Við löbbuðum um Arnarhól, við undirleik Botnleðju og XXX Rottweiler. Hittum hina og þessa, en héldum okkur lengst í félagsskap Ásgeirs, Baldurs, Elliða, Önnu Rúnu, Sunnevu o.fl. Þess má geta hér að á leiðinni á Arnarhól í mesta sumarroki sem ég man eftir, sáu Björg og Júlía okkur úr fjarska, nálguðust og sögðust einmitt hafa verið að hugsa hvaða tveir ógeðslega sætu strákar þetta voru. Gaman að því. Allavega, svo löbbuðum við niður á Ingólfstorg og hittum Jónas Odd á leiðinni („..núnú, þið eruð bara ennþá saman..“). Nenntum ekki að hlusta á Stjórnina og kíktum inní einhverja tölvuleikjabúllu. Fórum svo í vinnupartí sem Kári var í. Það var ótrúlegt. Artí fartí partí. Haldið í íbúð á Barónsstíg sem fimm krakkar á aldrinum 18 til ca. 20 leigja saman; nokkurskonar kommúna. Á veggjunum voru ljósmyndir af tómum herbergjum, lesbískum vampírum (þess má geta hér að í partíinu voru allavega fjórar lesbíur, tvær þeirra par, nokkuð sem ég hef aldrei séð áður), og eitt herbergið var dýna, tölva, hljómborð, gítar, upptökutæki og geðveikt mikið af bjór. Illa góð stemmning; Leonard Cohen og Bítlarnir í botniu allan tímann, og þeir sem ekki sungu með litnir hornauga. Ég fílaði mig einsog Verzling í þessu umhverfi og reyndi í örvæntingu að fela Puma merkið á skónum mínum. Í þessari íbúð var einnig að finna risavaxið plötusafn, sem mig grunar að einhver Svala vilji komast í. Sætar stelpur á staðnum, en mér tókst með naumindum að hemja mig ;-)
En það var vinna daginn eftir (í dag) og maður hélt sig á mottuna, enginn bjór eða slíkt og snemma í rúmið (um hálftvö). Svo var vinna í dag, 12 slappir tímar, og ökutími á eftir.
***
Varðandi þessa síðu, þá mun ég reyna að uppfæra hana eftir fremsta megni, enda lítið annað að gera þegar kærastan er farin. Síðan er frjáls öllum til lesturs, og reynt er að hafa textann léttan og skemmtilegan. Persónulegri samskipti skulu fara fram í tölvupósti (atlib@hotmail.com) eða með öðrum persónulegum leiðum. Þegar slíkt er hægt verða settir tenglar yfir á myndir, tónlist eða annað skemmtiefni. Ég vil líka minna á að koma til mín heimilisfangi og símanúmeri, bara til að mér líði vel. Annars bið ég þig/ykkur um að njóta vel og hafa það gott!